| Fundarnúmer: |
542 |
| Dagsetning: |
26.05.2008 |
| Tími: |
10:00 |
| Staður: |
Fundarsalur Ráðhúss |
542. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 26. maí 2008 kl. 10:00 á skrifstofu sveitarstjóra.
Dagskrá:
1. Viðræður við fulltrúa Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda. (Formaður landbúnaðarráðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.)
2. Stækkun dreifikerfis hitaveitu Húnaþings vestra.
3. Bréf framkvæmdastjóra USVH, dags. 15. maí sl.
4. Tilboð rekstrarráðgjafa vegna úttektar á rekstri íþróttamiðstöðvar.
5. Bréf stjórnar USVH, dags. 14. maí sl.
6. Bréf Andreu Björnsdóttur.
7. Fundargerð stjórnar SSNV frá 13. maí sl.
8. Tilkynning um 16. Ársþing SSNV.
9. Bréf Sveins Hallgrímssonar.
10. Bréf Félags tónlistarskólakennara.
Afgreiðslur:
1. Til fundar með byggðarráði eru mættir Gunnar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda og Sigtryggur Sigurvaldason, formaður landbúnaðarráðs. Rætt var um samning milli Húnaþings vestra og Búnaðarsambands Húnaþings og Stranda um framkvæmd búfjáreftirlits í Húnaþingi vestra. Rætt var um ýmiss framkvæmdaatriði varðandi búfjáreftirlitið m.a. tímasetningu eftirlitsheimsókna, tilnefningu tilsjónarmanna búfjár á lögbýlum þar sem ekki er föst búseta og aukaheimsóknir vegna búfjáreftirlits.
2. Ólafur H. Stefánsson, forstöðumaður tæknideildar er mættur til fundarins. Rætt um stöðu mála vegna stækkunar á dreifikerfi hitaveitunnar. Byggðarráð samþykkir að fela tæknideild að undirbúa kynningarfund um lagningu hitaveitu í dreifbýli og aðra valkosti til húshitunar í dreifbýli. Byggðarráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hitaveita verði lögð að hesthúsahverfi ofan Hvammstanga á árinu 2008. Þá samþykkir byggðarráð að fela forstöðumanni tæknideildar og sveitarstjóra að undirbúa kynnisferð til einstakra veitustofnana sem lagt hafa hitaveitu í dreifbýli.
3. Fram lagt bréf framkvæmdastjóra USVH, en þar er óskað eftir því að afreksíþróttafólki á aldrinum 14-18 ára í sveitarfélaginu verði eins og verið hefur veittur aðgangur að íþróttasal utan æfingartíma aðildarfélaga þegar salurinn er ekki í annarri notkun. Aðgengið verði án þjálfara og eftirlit verði með öryggismyndavélum í íþróttasal. Iðkendur sem valdir verða af aðildarfélögum USVH stundi æfingarnar á ábyrgð íþróttafélags og foreldra. Samdar verði reglur um aðgengið þar sem gert verði ráð fyrir undirritun iðkanda, foreldra/forráðamanna og aðildarfélags. Byggðarráð felur Oddi Sigurðarsyni og Sveini Benónýssyni, íþrótta- og tómstundafulltrúa að leggja drög að reglum um slíkt aðgengi.
4. Tilboð rekstrarráðgjafa vegna úttektar á rekstri íþróttamiðstöðvar lögð fram. Umrædd tilboð eru frá R3-Ráðgjöf ehf. og KPMG. Fram kom tillaga frá Guðnýju Helgu Björnsdóttur um að gengið verði til samninga við R3-Ráðgjöf ehf. um framkvæmd úttektar á rekstri Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra. Tillagan samþykkt með tveimur atkvæðum. Heimir Ágústsson lagði til að tilboði KPMG verði tekið. Oddur Sigurðarson tók undir tillögu Heimis.
5. Fram lagt bréf stjórnar USVH, en þar er farið fram á að frjálsíþróttavöllur og æfingasvæði knattspyrnu í Kirkjuhvammi verði í nothæfu ástandi frá byrjun júní þar til æfingum líkur í haust. Byggðarráð samþykkir að vísa bréfinu til íþrótta- og tómstundafulltrúa. Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að leggja tillögur um úrbætur fyrir næsta fund byggðarráðs. Oddur Sigurðarson lagði fram eftirtaldar fyrirspurnir vegna þjónustusamnings um umsjón og viðhald íþróttavalla í Kirkjuhvammi. Svara er óskað á næsta byggðarráðsfundi;
1. Hverjir hafa verið eftirlitsmenn sveitarfélagsins árin 2004, 2005, 2006 og 2007?
2. Hversu oft annaðist eftirlitsmaður sveitarfélagsins reglubundið eftirlit árin 2004, 2005, 2006 og 2007, sundurliðað eftir árum?
3. Hversu margar: athugasemdir, eftirlits- og úttektarskýrslur voru gerðar á ofangreindum árum? Óska eftir að fá afrit af þeim?
4. Hvenær á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007:
a) Komst knattspyrnuæfingasvæðið í leikhæft ástand samanber 3. grein þjónustusamnings?
b) Og hve marga daga var það í leikhæfu ástandi?
c) Komst frjálsíþróttavöllurinn í leikhæft ástand samanber 3. grein þjónustusamnings?
d) Og hve marga daga var hann í leikhæfu ástandi?
5. Hversu oft var knattspyrnuæfingasvæðið á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007:
a) Sandað, sundurliðað eftir árum?
b) Gatað og endursáð, sundurliðað eftir árum.
6. Hversu oft var haft samráð við notendur svæðisins varðandi þær kröfur sem gerðar eru til íþróttavalla á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007?
7. Var á tímabilinu 2004 - 2007 verktaka einhvern tímann tilkynnt um, eða óskað eftir úrbótum um viðhald svæðisins að hálfu eftirlitsmanns sveitarfélagins?
8. Var á tímabilinu 2004 - 2007 sveitarfélaginu einhvern tímann tilkynnt um, eða óskað eftir úrbótum um viðhald svæðisins að hálfu verktaka?
9. Hversu oft var knattspyrnuæfingasvæðið vökvað á árinu 2007 af hálfu verktaka?
10. Hversu oft voru hlaupabrautir slóðadregnar á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007.
11. Hversu oft var timburverk lagað á frjálsíþróttavelli á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007?
12. Hvenær var fyrirspurnum Umf. Kormáks frá 2005 í greinargerð um umsjón og viðhald ofangreinds svæðis svarað? Fá afrit af svarbréfinu.
6. Fram lagt bréf Andreu Björnsdóttur þar sem hún segir upp starfi sínu frá og með 1. maí sl. Byggðarráð samþykkir uppsögnina og þakkar Andreu fyrir vel unnin störf í þágu Húnaþings vestra á liðnum árum.
7. Fram lögð til kynningar fundargerð stjórnar SSNV frá 13. apríl sl. Guðný Helga Björnsdóttir
skýrði einstaka liði fundargerðarinnar.
8. Fram lögð tilkynning frá framkvæmdastjóra SSNV þar sem greint er frá því að 16. Ársþing SSNV verði haldið á Siglufirði 19.-20. september nk.
9. Fram lagt bréf Sveins Hallgrímssonar þar sem hann segir upp starfi sínu frá og með 19. maí sl. Jafnframt óskar Sveinn eftir því að þurfa ekki að vinna uppsagnarfrestinn að loknu sumarfríi. Byggðarráð samþykkir uppsögnina og fellst á beiðni Sveins um að þurfa ekki að vinna uppsagnarfrestinn að loknu sumarleyfi. Byggðarráð þakkar Sveini fyrir vel unnin störf í þágu Húnaþings vestra á liðnum árum.
10. Fram lagt bréf Félags tónlistarskólakennara þar sem óskað er eftir tilnefningu í „Fagráð tónlistarskóla“ Byggðarráð felur sveitarstjóra að afla upplýsinga um málið.
Samþykkt að taka á dagskrá:
11. Samkvæmt auglýsingu þar sem óskað var eftir aðila til að annast umhirðu íþróttavallarsvæðis í Kirkjuhvammi sumarið 2008 samþykkir byggðarráð að fela íþrótta- og tómstundafulltrúa að ganga til viðræðna við Björn Þorgrímsson um umhirðuna.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 13:15
Heimir Ágústsson(sign.), Skúli Þórðarson(sign.),
Guðný Helga Björnsdóttir(sign.), Elín R. Líndal(sign.),
Áheyrnarfulltrúi:
Oddur Sigurðarson(sign.).