544. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 9. júní 2008 kl. 10:00 á skrifstofu sveitarstjóra.
Dagskrá:
1. Viðræður við Þorvald Böðvarsson, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Hvammstanga.
2. Íþróttavallarsvæði í Kirkjuhvammi. Sveinn Benónýsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.
3. Fundarboð frá Veiðifélagi Miðfirðinga.
4. Bréf Umf. Kormáks v/ 17. júní.
5. Bréf Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
6. Bréf Kristínar Maríu Jónsdóttur.
7. Bréf Guðrúnar Láru Magnúsdóttur, leikskólastjóra.
8. Fundargerð 754. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
9. Svör við fyrirspurnum Odds Sigurðarsonar frá 542. fundi byggðarráðs.
Afgreiðslur:
1. Þorvaldur Böðvarsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Hvammstanga er mættur til viðræðna við byggðarráð. Þorvaldur lagði fram skýrslu um framkvæmdir við safnvegi í Húnaþingi vestra árið 2007 og áætlun um viðhald safnvega árið 2008. Rætt um áætlanir um nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni á árinu 2008 og næstu árum. Einnig farið yfir viðhald girðinga með vegsvæðum þar sem lausaganga búfjár hefur verið bönnuð.
2. Íþróttavallarsvæði í Kirkjuhvammi. Vegna forfalla íþrótta- og tómstundafulltrúa er umræðu frestað til næsta fundar
3. Fram lagt fundarboð frá Veiðifélagi Miðfirðinga þar sem boðað er til almenns félagsfundar mánudaginn 16. júní nk. kl. 21:00. Sveitarstjóri verði fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum og oddviti til vara.
4. Fram lagt bréf Umf. Kormáks þar sem tilkynnt er að félagið treysti sér ekki, v/ lítils fyrirvara, til að taka að sér umsjón og framkvæmd með hátíðarhöldunum á 17. júní. Formaður byggðarráðs greindi frá því að Kvenfélagið Freyja hafi tekið að sér að annast hátíðarhöldin á 17. júní.
5. Fram lagt bréf Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra þar sem tilkynnt er um hækkun á gjaldskrá heilbrigðiseftirlitsins og framlagi sveitarfélaganna frá og með 1. júlí nk. Byggðarráð samþykkir tillöguna.
6. Fram lagt bréf Kristínar Maríu Jónsdóttur þar sem hún óskar eftir áframhaldandi leigu á íbúðinni að Garðavegi 18, neðri hæð. Byggðarráð samþykkir erindið.
7. Bréf Guðrúnar Láru Magnúsdóttur, leikskólastjóra lagt fram en í því koma fram tillögur um ráðningu starfsmanna vegna stuðnings og afleysinga. Byggðarráð samþykkir að fresta afgreiðslu til næsta fundar.
8. Fram lögð til kynningar fundargerð 754. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
9. Sveitarstjóri lagði fram eftirfarandi svör við fyrirspurnum Odds Sigurðarsonar; frá 542. fundi byggðarráðs þann 26. maí sl.
1. Hverjir hafa verið eftirlitsmenn sveitarfélagsins árin 2004, 2005, 2006 og 2007?
Árið 2004 – íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Árið 2005 – íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Árið 2006 – Forstöðumaður tæknideildar eða fulltrúi hans.
Árið 2007 - Forstöðumaður tæknideildar eða fulltrúi hans.
2. Hversu oft annaðist eftirlitsmaður sveitarfélagsins reglubundið eftirlit árin 2004, 2005, 2006 og 2007, sundurliðað eftir árum?
Upplýsingar liggja ekki fyrir. Skráning athugasemda eða eftirlits- og úttektarskýrslur eða samskipti eftirlitsmanns og verktaka voru ekki færð með skipulögðum hætti á þessum árum.
3. Hversu margar: athugasemdir, eftirlits- og úttektarskýrslur voru gerðar á ofangreindum árum? Óska eftir að fá afrit af þeim?
Upplýsingar liggja ekki fyrir. Skráning athugasemda eða eftirlits- og úttektarskýrslur eða samskipti eftirlitsmanns og verktaka voru ekki færð með skipulögðum hætti á þessum árum.
4. Hvenær á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007:
a) Komst knattspyrnuæfingasvæðið í leikhæft ástand samanber 3. grein þjónustusamnings?
b) Og hve marga daga var það í leikhæfu ástandi?
c) Komst frjálsíþróttavöllurinn í leikhæft ástand samanber 3. Grein þjónustusamnings?
d) Og hve marga daga var hann í leikhæfu ástandi?
Upplýsingar um dagsetningar eru ekki tiltækar en fyrir liggur að stundaðar voru skipulagðar íþróttaæfingar á svæðinu öll sumur á þessum árum, jafnan frá vori og fram á haust.
5. Hversu oft var knattspyrnuæfingasvæðið á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007:
a) Sandað, sundurliðað eftir árum?
b) Gatað og endursáð, sundurliðað eftir árum.
Upplýsingar liggja ekki fyrir. Í samningum um umhirðu er ekki kveðið á um götun.
6. Hversu oft var haft samráð við notendur svæðisins varðandi þær kröfur sem gerðar eru til íþróttavalla á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007?
Upplýsingar liggja ekki fyrir.
7. Var á tímabilinu 2004 - 2007 verktaka einhvern tímann tilkynnt um, eða óskað eftir úrbótum um viðhald svæðisins að hálfu eftirlitsmanns sveitarfélagins?
Upplýsingar liggja ekki fyrir. Fyrir liggur að verktaki og fulltrúi verkkaupa hafa á þessum árum haft samskipti vegna umhirðu svæðisins en skráning þeirra samskipta er ekki tiltæk.
8. Var á tímabilinu 2004 - 2007 sveitarfélaginu einhvern tímann tilkynnt um, eða óskað eftir úrbótum um viðhald svæðisins að hálfu verktaka?
Upplýsingar liggja ekki fyrir. Fyrir liggur að verktaki og fulltrúi verkkaupa hafa haft samskipti um umhirðu svæðisins.
9. Hversu oft var knattspyrnuæfingasvæðið vökvað á árinu 2007 af hálfu verktaka?
Upplýsingar liggja ekki fyrir.
10. Hversu oft voru hlaupabrautir slóðadregnar á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007.
Upplýsingar liggja ekki fyrir.
11. Hversu oft var timburverk lagað á frjálsíþróttavelli á árunum 2004, 2005, 2006 og 2007?
Upplýsingar liggja ekki fyrir.
12. Hvenær var fyrirspurnum Umf. Kormáks frá 2005 í greinargerð um umsjón og viðhald ofangreinds svæðis svarað? Fá afrit af svarbréfinu.
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra þann 18. apríl 2005 lagði umhverfisstjóri fyrir byggðarráð drög að þjónustusamningi um umhirðu íþróttarvallarsvæðis í Kirkjuhvammi. Byggðarráð fól umhverfisstjóra að kynna Umf. Kormáki samningsdrögin. Á fundi byggðarráðs þann 2. maí 2005 var lögð fram greinargerð Umf. Kormáks v/ undirbúnings að gerð umhirðusamnings um íþróttarvallarsvæðið í Kirkjuhvammi. Byggðarráð fól sveitarstjóra að ganga til samninga við Jón Inga Björgvinsson og fjölskyldu um umhirðu í Kirkjuhvammi sumarið 2005. Engin umfjöllun um fyrirspurnir Umf. Kormáks eru færðar til bókar í umræddri fundargerð og var þeim því ekki svarað.
Samþykkt að taka á dagskrá;
10. Vegna riðu sem greinst í sauðfé á bænum Brautarholti í Hrútafirði og í tengslum við fyrirhugaðan niðurskurð fjárins leggur byggðarráð Húnaþings vestra þunga áherslu á að sýni verði tekin úr öllu fullorðnu fé sem skorið verður niður í Brautarholti, að rannsóknum á þessu tilviki verði hraðað svo sem kostur er og að sýni verði tekin úr öllu fullorðnu fé úr Miðfjarðarhólfi sem kemur til slátrunar í haust. Ályktun þessi skal send Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Matvælastofnun sem skulu tryggja að nægilegir fjármunir séu fyrir hendi til að annast viðeigandi rannsóknir.
11. Fram lögð tillaga frá Heimi Ágústssyni um að sveitarstjórn Húnaþings vestra skipi starfshóp sem hafi það hlutverk að leita leiða til að draga úr aksturskostnaði heimila vegna þátttöku barna í skóla- og tómstundastarfi.
Fundagerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12:40.
Heimir Ágústsson(sign.), Skúli Þórðarson(sign.),
Guðný Helga Björnsdóttir(sign.), Þ. Karl Eggertsson(sign.).
Áheyrnarfulltrúi:
Oddur Sigurðarson(sign.).