| Fundarnúmer: |
145 |
| Dagsetning: |
10.04.2008 |
| Tími: |
15:00 |
| Staður: |
Fundarsalur Ráðhúss |
Árið 2008 fimmtudaginn 10. apríl kom sveitarstjórn Húnaþings vestra saman til 145. fundar í Ráðhúsi Húnaþings vestra kl. 15:00. Oddviti setti fund. Mætt undirrituð.
Gengið var til dagskrár.
1. Ársreikningur fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og fyrirtæki 2007. Fyrri umræða. Mættur var á fundinn Kristján Jónasson endurskoðandi og einnig Guðrún Ragnarsdóttir skrifstofustjóri. Kristján fór yfir reikningana og útskýrði þá. Reikningurinn er undirritaður af löggiltum endurskoðanda og einnig kjörnum skoðunarmönnum reikninga Húnaþings vestra. Að loknum umræðum og fyrirspurnum lagði oddviti til að ársreikningi fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og fyrirtækja 2007 verði vísað til síðari umræðu. Samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Fundargerðir byggðarráðs. Formaður kynnti.
a) Fundargerðir 534. fundar 17. mars. Fundargerð í 5 liðum. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
b) Fundargerð 535. fundar 31. mars. Fundargerð í 12 liðum. Lögð var fram svohljóðandi tillaga vegna 3. liðar: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að tilnefna Sigtrygg Sigurvaldason formann landbúnaðarráðs sem tengilið Húnaþings vestra við Landgræðslu ríkisins vegna héraðsáætlana.“ Borinn undir atkvæði 3. liður fundargerðarinnar ásamt framangreindri tillögu og samþykkt með 7 atkvæðum. Aðrir liðir fundargerðarinnar samþykktir með 7 atkvæðum.
c) Fundargerð 536. fundar 7. apríl Fundargerð í 11 liðum. Lögð var fram svohljóðandi tillaga vegna 10. liðar; „Sveitarstjórn Húnaþings vestra skorar á Matvælastofnun og Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að fella ekki niður sauðfjárveikivarnarlínu nr. 53, Vatnsneslínu. Sveitarstjórn Húnaþings vestra ítrekar mikilvægi þess að sauðfjárveikivarnarlínum í sveitarfélaginu sé þannig viðhaldið að þær geti gegnt hlutverki sínu.“ Borinn undir atkvæði 10. liður fundargerðarinnar ásamt framangreindri tillögu og samþykkt með 7 atkvæðum. Borinn undir atkvæði 2. liður fundargerðarinnar og samþykktur með 5 atkvæðum. Rakel Runólfsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar. Aðrir liðir fundargerðarinnar samþykktir með 7 atkvæðum.
3. Fundargerð 88. fundar Félagsmálaráðs 27. mars. Fundargerð í 2 liðum. Oddviti kynnti. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
4. Fundargerð 98. fundar fræðsluráðs 12. mars. Fundargerð 1 liður. Oddviti kynnti. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
5. Fundargerð 85. fundar landbúnaðarráðs 26. mars fundargerð í 3 liðum. Oddviti kynnti. Lögð var fram svohljóðandi tillaga vegna 2. liðar: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir tillögu landbúnaðarráðs um að yfirvöld búfjársjúkdómavarna beri kostnað af jarðvegsskiptum í Valdarásrétt telji þau slíka aðgerð nauðsynlega.“ Fundargerðin borin undir atkvæði ásamt framangreindri tillögu og samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Fundargerð 78. fundar menningar- og tómstundaráðs 2. apríl. Fundargerð í 5 liðum. Oddviti kynnti. Fundargerðin samþykkt með 6 atkvæðum.
7. Fundargerð 142. fundar skipulags- og umhverfisráðs 3. apríl. Fundargerð í 4 liðum. Oddviti kynnti. Fundargerðin samþykkt með 7 atkvæðum.
Í fundarlok var lögð fram svohljóðandi ályktun: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar, þar sem Húnaþing vestra er í 2. sæti af þeim sveitarfélögum sem standa sig best í jafnréttismálum.
Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 17:40.
Skúli Þórðarson(sign.), Ólafur B. Óskarsson fundarritari(sign.)
Elín R. Líndal(sign.), Guðný Helga Björnsdóttir(sign.),
Rakel Runólfsdóttir(sign.), Þ. Karl Eggertsson(sign.),
Heimir Ágústsson(sign.), Stefán Böðvarsson(sign.),
Oddur Sigurðarson(sign.).