Á vegum verkefnisins Leiðir til byggðafestu er boðið upp á áhugavert námskeið um sóknarfæri í ræktun með svokallaðri "No dig/No till" aðferð.
Hjónin Þórunn MHJ Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson hvítlauksræktendur að Neðri-Breku í Dalabyggð eru frumkvöðlar í slíkri ræktun hérlendis. Aðferðin er einnig kennd við "lasagna" þar sem náttúran sér sjálf um ræktunarvinnuna í hverju lagi fyrir sig. Þórunn og Haraldur hagfa kynnt sér aðferðafræðina vel og deila nú reynslu sinni með áhugasömum.
Þessi árangursríka aðferð nýtist í allskonar ræktun grænmetis fyrir heimili, veitingahús eða til framleiðslu fyrir sölu á markaði.
Þann 1. júlí kl. 16-19 verður haldið námskeið um þessa ræktungaraðferð í Víðihlíð. Áhugasöm eru beðin um að skrá sig með því að senda póst á hlediss@gmail.com eða með því að merkja við mætingu á facebook viðburði námskeiðsins. Einnig er boðið upp á samskonar námskeið á Ströndum og í Dalabyggð.
Námskeiðið er án endurgjalds.
Verkefnið Leiðir til byggðafestu hófst árið 2023 undir forystu landshlutasamtaka og stjórnenda í sex sveitarfélögum: Dalabyggð, Reykhólkahreppi, Árneshreppi, Kaldrananeshreppi, Strandabyggð og Húnaþingi vestra.
Eins og nafnið gefur til kynna er tilgangur verkefnisins að kynna tækfæri til að auka byggðafestu í þeim byggðum sem við sögu koma.
Tillögurnar um það efni unnu Hlédís Sveinsdóttir verkefnastjóri og Björn Bjarnason, fyrrv. ráðherra, og má lesa þær í heild í skýrslu þeirra:
Leiðir til byggðafestu.