Brunavarnir

Heimilisfang: Höfðabraut 31, 530 Hvammstanga
Sími: 451-2411
Vaktsími: 840-4350
Netfang slökkviliðsstjóra: valurfr@hunathing.is 
Neyðarsími: 112
Heimasíða: sjá síðu á facebook

Slökkviliðsstjóri: Valur Freyr Halldórsson
Varaslökkviliðsstjóri: Þorsteinn J. Guðmundsson

Bóka símtal við slökkviliðsstjóra.

Slökkvistöð Brunavarna Húnaþings vestra er staðsett að Höfðabraut 31, Hvammstanga og er starfsemin í 225 fm húsnæði. 

Markmið með rekstri slökkviliða er að vernda líf, heilsu og eignir fólks með því að tryggja fullnægjandi eldvarnareftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.

Sveitarfélagi er skylt að sjá um að starfsemi slökkviliðs fullnægi kröfum samkvæmt lögum nr.75/2000 svo og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Eldvarnaeftirlit sveitarfélaga er sú starfsemi slökkviliðs sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laga og reglna um brunavarnir sé framfylgt.

Brunavarnir Húnaþings vestra hafa yfir að ráða margvíslegum tækjabúnaði, svo sem Iveco Magirus Deuts slökkvibifreið árgerð 1978, Man 19,292 tankbifreið árgerð 1990 með 7000 lítra vatnstank, Chevrolet Pickup árgerð 1991 sem er sérútbúin tækjabifreið slökkviliðsins, með björgunarklippum, reykblásara, rafstöð, reykköfunartækjum, slökkvitækjum, ljóskösturum, ásamt búnaði fyrir mengunarslys.

Reglulega eru haldnar æfingar hjá slökkviliðinu þar sem tekið er á ýmsum verkefnum sem slökkviliðsmenn þurfa að takast á við í útköllum.

Á útkallslista eru 17 menn ásamt slökkviliðsstjóra og varaslökkviliðsstjórum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?