Á þessari síðu verður haldið utan um undirbúning og skipulag samfélagsmiðstöðvar í Félagsheimlinu Hvammstanga.
Íbúafundur í Félagsheimilinu Hvammstanga 17. september 2024
Samfélagsmiðstöð - hugmyndavinna og áherslur íbúa
16:30 - Fundur settur - léttar veitingar á meðan fundinum stendur.
- Kynning á starfi tengslafulltrúa
- Kynntar hugmyndir um samfélagsmiðstöð
- Núverandi teikningar af félagsheimili - hvar liggja tækifærin?
16:50 - Fyrri vinnustofa
- Hópvinna (6-8 í hóp, hópstjórar verða á hverju borði sem skrá hugmyndir)
- Svarað eftirfarandi spurningum í hverjum hóp:
-
- Hvaða tómstundastarf sjáið þið fyrir ykkur í samfélagsmiðstöðinni?
-
- Hvaða væntingar hafið þið til tæknismiðjunnar (FabLab aðstöðunnar)?
-
- Hvernig gæti iðnaðareldhús nýst samfélaginu?
-
- Hvað þarf að vera til staðar í iðnaðareldhúsi svo það nýtist sem best?
-
- Hvaða starfsemi/búnaður/aðstaða ætti að vera til staðar í húsnæðinu og hvar?
17:30 - Önnur vinnustofa
- Hópvinna (6-8 í hóp, hópstjórar verða á hverju borði sem skrá hugmyndir)
- Svarað eftirfarandi spurningum í hverjum hóp:
-
- Hvernig ætti opnunartími og aðgengi að aðstöðunni að vera?
-
- Hvað á samfélagsmiðstöðin að heita?
-
- Hvernig á að virkja íbúa til þess að nýta sér samfélagsmiðstöðina?
-
- Hvaða hópar og félagasamtök gætu nýtt sér samfélagsmiðstöðina fyrir sýna starfsemi?
-
- Hvernig væri hægt að samnýta aðstöðu, t.d. fyrir ólíka hópa?
-
- Eitthvað annað sem þið viljið koma á framfæri?
18:10 – Stutt samantekt frá hópstjórum um þær hugmyndir sem fram koma á fundinum og spurningar til skipuleggjenda.
18:30 – 19:00 - skoðunarferð um félagsheimilið fyrir þá sem vilja.
Eftir fundinn verður samantekt á hugmyndum birt á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem íbúum gefst tækifæri til að bæta við hugmyndum eða athugasemdum rafrænt.