Sumardagurinn fyrsti

Hátíðin er í samstarfi við Hestamannafélagið Þyt og hefst með ókeypis sirkussýningu í Þytsheimum klukkan 12:00.
Síðan verður haldið upp á sumardaginn fyrsta á hefðbundinn hátt með skrúðgöngu frá Reiðhöllinni Þytsheimum klukkan 14:00. Gengið verður niður að Félagsheimili með viðkomu á Sjúkrahúsinu. Að lokinni skrúðgöngu verður boðið til hátíðar í Félagsheimilinu. Þar afhendir m.a. Vetur konungur Sumardísinni veldissprota sinn. Börn úr fyrsta og öðrum bekk grunnskólans skemmta með söng.
Öllum er síðan boðið í sumarkaffi. Á eftir verða spilaðar nokkrar umferðir í bingó þar sem glæsilegir vinningar eru í boði.
 
Öll dagskráin er ókeypis og eru allir hjartanlega velkomnir.
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra

Var efnið á síðunni hjálplegt?