Afgreiðslur:
1. Staða sauðfjárræktar
Landbúnaðarráð tekur heilshugar undir bókun byggðarráðs Húnaþings vestra frá 21. ágúst sl. og gerir að sinni.
Að auki bendir landbúnaðarráð Húnaþings vestra á að samkvæmt minnisblaði Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins er meðal tekjutap á hvert sauðfjárbú í sveitarfélaginu um 2.000.000 á árinu 2017 ef miðað er við það verð sem fékkst fyrir afurðir árið 2015. Sauðfjárbú í Húnaþingi vestra eru 93 með um 330 íbúum. Fyrir meðalheimili er þessi tekjumissir meiri en flest heimili ráða við, sérstaklega þar sem ekki er fyrirsjáanlegt að breyting verði á í nánustu framtíð.
Landbúnaðarráð hvetur forsvarsmenn bænda og afurðastöðva, landbúnaðarráðherra og ráðherra byggðamála, og alþingismenn að setja kraft í að leysa vanda sauðfjárbænda með farsælum hætti.
2. Önnur mál.
Rjúpnaveiði. Rætt var um fyrirkomulag rjúpnaveiði í haust. Ákveðið að hafa sama fyrirkomulag og á síðasta ári.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14:10