Dagskrá:
- Úthlutun fjármagns til viðhalds samgönguleiða.
- Drög að reglum um refa og minkaveiðar.
- Önnur mál.
Afgreiðslur:
1. Úthlutun fjármagns til viðhalds samgönguleiða.
Borist hefur tölvubréf og í framhaldi af því staðfesting símleiðis frá Vegagerðinni, þar sem fram kemur að samþykkt hafi verið úthlutun til styrkvega árið 2019 kr, 3.500.000. Í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins árið 2019 er samþykkt að veita kr. 2.200.000 til styrkvega. Til viðhalds styrkvega á árinu 2019 eru því kr. 5.700.000.
Eftirfarandi tillaga um skiptingu fjárins var samþykkt samhljóða:
a) Til afréttarvegar á Víðidalstunguheiði kr. 2.000.000
b) Til sérverkefnis á Víðidalstunguheiði
v/skemmda v. brots á akstursbanni kr. 1.000.000
c) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.200.000
d) Til afréttavega í Hrútafirði kr. 950.000
e) Til vegar yfir Brandagilsháls kr. 300.000
f) Til vegar upp á Vatnsnesfjall kr. 250.000
Viðkomandi fjallskilastjórnir sjái um framkvæmdir á afréttarvegum hver á sínu svæði að öðru leyti en því að sveitarstjóra er falið að fá verktaka í viðhald vegar yfir Brandagilsháls.
2. Drög að reglum um refa og minkaveiðar í Húnaþingi vestra.
Umræðum frestað til næsta fundar.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14:57