Við leikskólann Ásgarð eru laus:
- Eitt tímabundið 100% stöðugildi til 31. maí
- Eitt tímabundið 100% stöðugildi til 17. júlí
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum með góða íslenskukunnáttu, áhuga á að vinna með börnum og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
- Leyfisbréf, háskólamenntun og/eða aðra menntun
- Áhuga á að starfa með börnum
- Fagmennska og lausnamiðuð hugsun
- Skipulagshæfileika
- Hæfni til að sýna frumkvæði í starfi
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Gleði og jákvæðni
Kaup og kjör samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um leikskólastarfið má finna á http://asgardur.leikskolinn.is/
Hugmyndafræði skólans byggir á vali og hópastarfi. Uppeldisstefna Húnaþings vestra er Jákvæður agi.
Umsóknafrestur er til 22. janúar næstkomandi og mun viðkomandi hefja störf 5. febrúar. Umsókn ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast í leikskólann Ásgarð, Garðavegi 7, 530 Hvt. eða rafrænt á leikskoli@hunathing.is
Frekari upplýsingar veitir Kristinn Arnar Benjamínsson, 451-2343 eða 845-1122
Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940 né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því í auglýsingu að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá um það hvort tiltekinn einstaklingur hafi hlotið dóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, að veittri fræðslu til hans þar að lútandi.