Súkkulaði og sykurpúðar á Bangsatúni

Þurfum við ekki öll á smá rólegheitum að halda í jólaösinni?
Krökkum í Húnaþingi (og foreldrum þeirra :)) er boðið til samverustundar á Bangsatúni á Þorláksmessu. Boðið verður upp á grillaða sykurpúða og heitt kakó.
Bangsarnir sem tóku sér bólfestu á túninu fyrir jólin 2020 ætla að kíkja aftur í heimsókn. Þeir koma sér fyrir á hinum ýmsu stöðum og eru auðvitað með endurskinsmerki í myrkrinu. Það er því tilvalið að koma með vasaljós og sjá hvort ekki finnast nokkrir 🙂 Heimildir eru fyrir því að þeir ætli að vera yfir jólin svo þau sem ekki komast á Þorláksmessu geta komið síðar og séð hvað þeir eru að bralla.
Var efnið á síðunni hjálplegt?