1.
|
Rekstrarstjóri kemur til fundar - 2311022
|
|
Björn Bjarnason rekstrarstjóri kom til fundar og fór yfir stöðu verkefna. Byggðarráð þakkar Birni greinargóða yfirferð.
|
|
|
Björn vék af fundi kl. 15:13.
|
2.
|
Fjallskilagjald fyrir jörðina Flatnefsstaði, úrskurður sýslumanns - 2211008
|
|
Lagður fram úrskurður sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna kæru álagningar fjallskilagjalda á landverð jarðarinnar Flatnefsstaða árið 2022. Úrskurður sýslumanns er á þann veg að sveitarstjórn Húnaþings vestra hafi á grundvelli 2. máls. 42. gr. laga nr. 6/1998 verið heimilt að krefja eigendur jarðarinnar um fjallskilagjald. Hins vegar kom í ljós að grunnur útreiknings var rangur og því voru gjöldin of há. Fjallskil ársins 2022 vegna Flatnefsstaða verða endurreiknuð í samræmi við úrskurðinn og lækkuð um kr. 5.100. Byggðarráð vísar úrskurðinum til landbúnaðarráðs til yfirferðar.
|
|
|
|
3.
|
Úthlutun almennrar leiguíbúðar, Garðavegur 18 efri hæð - 2308042
|
|
Á 1194. fundi byggðarráðs þann 23. október sl. var íbúðinni að Garðavegi 18, efri hæð, úthlutað til Björns Bjarnasonar til eins árs frá 1. desember nk. Björn hefur nú afþakkað íbúðina. Byggðarráð samþykkir að leigja Antoni Scheel Birgissyni og Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur íbúðina að Garðavegi 18, efri hæð, til eins árs frá 1. desember nk.
|
|
|
|
4.
|
Lindarvegur 12, umsókn um lóð - 2311031
|
|
Hrannar Birkir Haraldsson sækir um lóðina Lindarveg 12. Byggðarráð samþykkir að úthluta lóðinni Lindarvegi 12 til Hrannars Birkis Haraldssonar.
|
|
|
|
5.
|
Fundargerð stjórnarfundar Náttúrustofu Norðurlands vestra frá 14. nóvember 2023 - 2311028
|
|
Lögð fram til kynningar.
|
|
|
|
6.
|
Fundargerð 100. fundar stjórnar SSNV, 7. nóvember 2023 - 2311023
|
|
Lögð fram til kynningar.
|
|
|
|
7.
|
Umsagnarbeiðni um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir, 71. mál. Umsagnarfrestur til 23. nóvember 2023 - 2311024
|
|
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir. Í breytingunni felst að sveitarfélögum er gert heimilt að standa fyrir stofnun félaga um tilteknar vegaframkvæmdir og rekstur með einkaaðilum eða félagasamtökum vegna uppbyggingar vega sem uppfylla ákveðin skilyrði. Málið var áður á dagskrá 1169. fundar byggðarráðs þann 6. mars 2023. Svohljóðandi var bókað: "Ljóst er að um langt skeið hefur uppbygging samgöngumannvirkja verið stórlega vanfjármögnuð. Um land allt er brýn þörf á uppbyggingu stofn- og tengivega sem miðað við það fjármagn á samgönguáætlun er áætlað til slíkra verka, mun taka áratugi að ljúka. Húnaþing vestra hefur ekki farið varhluta af skorti á uppbyggingu vega. Þess vegna er framlagningu frumvarpsins fagnað þar sem í því eru kynntar leiðir sem stuðla eiga að tækifærum til flýtingar stærri framkæmda sem uppfylla ákveðin skilyrði. Með því losna fjármunir til annarra verka. Þó svo að frumvarpinu sé fagnað er þó vert að undirstrika það sem tekið er fram í greinargerð að ekki sé gerð krafa um framlög sveitarfélaga til slíkra framkvæmda heldur forystu þeirra um stofnun félaga til að hraða framkvæmdum. Ekki er hlutverk sveitarfélaganna að bera kostnað af slíkum framkvæmdum heldur er það ábyrgð ríkis. Hins vegar þekkja sveitarfélögin vel hvar þörfin er brýnust og því er aðkoma þeirra að félögum sem kunna að vera stofnuð um tilteknar framkvæmdir mikilvæg. Flestir landshlutar hafa unnið staðbundnar samgönguáætlanir og er Norðurland vestra einn þeirra. Því miður hefur borið á því að þær áherslur sem lagðar eru fram í þeim áætlunum eru ekki virtar í ákvörðunum um framkvæmdir. Í greinargerð með frumvarpinu er lögð áhersla á vilja heimamanna og tekur byggðarráð heilshugar undir mikilvægi þess að sá vilji sé virtur. Brýn nauðsyn er til að leita nýrra leiða til að bæta vegi á Íslandi. Því ber að fagna framlagningu frumvarpsins sem kynnir nýja og framsækna leið til að flýta brýnum framkvæmdum á landsbyggðinni. Því styður byggðarráð Húnaþings vestra að frumvarpið nái fram að ganga." Málið er nú lagt fyrir aftur í óbreyttri mynd. Byggðarráð felur sveitarstjóra að senda umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis samhljóða umsögn um málið.
|
|
|
|
Bætt á dagskrá
|
8.
|
Tilboð í fasteignina Lindarveg 3a - 2311038
|
|
Lagt fram tilboð frá Rakel Sunnu Pétursdóttur og Jóhanni Braga Guðjónssyni í fasteignina Lindarveg 3a á Hvammstanga. Hljóðar tilboðið upp á kr. 42,5 millj. með fyrirvara um fjármögnun. Byggðarráð samþykkir tilboðið. Byggðarráð veitir Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra, kt. 160673-3119, fullt og ótakmarkað umboð til að selja fyrir hönd Húnaþings vestra fasteignina Lindarveg 3A, Hvammstanga, fastanr. 2511362. Umboðið nær til þess að undirrita söluumboð, kauptilboð, kaupsamning, uppgjör, afsal, skuldabréf og öll önnur nauðsynleg skjöl vegna sölu á framangreindri eign.
|
|
|
|