1.
|
Málstefna Húnaþings vestra 2024-2028 - 2401027
|
|
Áður á dagskrá 1203. fundar byggðarráðs þar sem samþykkt var að setja stefnuna í samráð á heimasíðu sveitarfélagsins. Var það gert með umsagnarfresti til 6. febrúar 2024. Engar umsagnir bárust. Byggðarráð samþykkir framlagða málstefnu og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
|
|
|
|
2.
|
Ósk um heimild til að framselja nafnarétt Hvammstangavallar til styrktar starfi meistaraflokks árið 2024. - 2401073
|
|
Lögð fram beiðni Meistaraflokksráðs Kormáks Hvatar um leyfi til að framselja nafnarétt Hvammstangavallar til að afla fjár til starfs meistarflokks. Byggðarráð tekur jákvætt í erindið en felur sveitarstjóra að óska eftir umsögnum stjórna Ungmennafélagsins Kormáks og USVH áður en ákvörðun er tekin.
|
|
|
|
3.
|
Reglur um útgáfu stöðuleyfa - 2402011
|
|
Lögð fram drög að reglum um útgáfu stöðuleyfa í Húnaþingi vestra. Eru reglurnar unnar af skrifstofu skipulags- og byggingafulltrúa og taka mið af lögum nr. 160/2010 um mannvirki og byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum. Byggðarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
|
|
|
|
4.
|
Fundargerð 942. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26. janúar 2024 - 2402014
|
|
Lögð fram til kynningar.
|
|
|
|
5.
|
Fundargerð 103. fundar stjórnar SSNV frá 6. febrúar 2024 - 2402017
|
|
Lögð fram til kynningar.
|
|
|
|