1220. Fundur

1220. Fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn þriðjudaginn 6. ágúst 2024 kl. 14:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Magnús Magnússon, formaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður. 

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri,

Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir
 
1. Beiðni Landsnets um stofnun raflínunefnda - svar innviðaráðuneytis - 2407015
Lögð fram til kynningar svör innviðaráðuneytis við beiðni Landsnets um skipan raflínunefnda vegna Holtavörðuheiðarlína 1 og 3. Telur innviðaráðuneytið að Landsnet hafi ekki sýnt fram á þörf á skipan nefndanna og hafnar því beiðninni.
 
Elín Lilja Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 14:08.
2. Úthutun Húnasjóðs 2024 - 2407031
Úthlutun Húnasjóðs 2024 var auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins þann 24. júní sl. með umsóknarfresti til og með 15. júlí. Alls bárust 7 umsóknir sem allar uppfylltu skilyrði til úthlutunar.
Samkvæmt stofnskrá sjóðsins skal sveitarsjóður leggja sjóðnum árlega til fé samkvæmt fjárhagsáætlun hverju sinni sem í ár eru kr. 600.000.
Byggðarráð samþykkir að veita eftirtöldum styrk að upphæð kr. 85.000 á hvern umsækjanda:
Elsa Rut Róbertsdóttir, sjúkraliðanám.
Ásta Guðný Unnsteinsdóttir, BS í íþrótta- og heilsufræði.
Jóna Margareta Júlíusdóttir Lundberg, BS í sálfræði.
Elín Lilja Gunnarsdóttir, nám til viðurkenningar bókara.
Björgvin Díómedes Unnsteinsson, nám í bílamálun.
Hörður Gylfason, bráðatækninám.
Arnheiður Diljá Benediktsdóttir, kvikmyndanám með áherslu á leikstjórn og framleiðslu.
Elín Lilja Gunnarsdóttir kom til fundar að nýju kl. 14:15.
 
3. Beiðni um aukið stöðugildi í Leikskólanum Ásgarði - 2407044
Lögð fram beiðni leikskólastjóra um aukið stöðugildi í leikskóla vegna fjölgunar nemenda. Einnig lagt fram minnisblað sviðsstjóra þar sem fram kemur staðfesting á umbeðinni þörf. Byggðarráð tekur jákvætt í erindið. Sveitarstjóra er falið að meta kostnað vegna aukningarinnar með tilliti til launaáætlunar og leggja fyrir byggðarráð.
 
 
4. Ráðning sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs - 2408001
 
Starf sviðsstjóra umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs var auglýst með umsóknarfresti til 15. júlí sl. Lögð fram eftirfarandi gögn:
1. Umsóknir allra umsækjenda.
2. Matsblað, fyrsta mat á umsækjendum unnið af ráðgjafa og sveitarstjóra í samræmi við hæfniskröfur sem tilgreindar voru í auglýsingu. Byggðarráð staðfestir mat skv. matsblaðinu og boðun umsækjenda í viðtöl.
3. Matsblað fyrir fyrsta viðtal unnið af ráðgjafa og sveitarstjóra í samræmi við hæfniskröfur sem tilgreindar voru í auglýsingu. Byggðarráð staðfestir mat skv. matsblaðinu.
4. Niðurstöður umsagnarbeiðna sem aflað var af ráðgjafa.
Sveitarstjóra í samvinnu við ráðgjafa er falið að boða til seinna viðtals með byggðarráði í samræmi við mat og umræður á fundinum.
 
5. Eldur í Húnaþingi 2024 - 2408002
Hátíðin Eldur í Húnaþingi var haldin dagana 23.-28. júlí sl. Byggðarráð færir skipuleggjendum hátíðarinnar og öllum þeim sem að framkvæmdinni komu, bestu þakkir fyrir vel unnin störf og vel heppnaða hátíð.
Samningur Húnaþings vestra um stuðning við hátíðina rennur út á árinu. Sveitarstjóra er falið að boða stjórn Elds í Húnaþingi til fundar við byggðarráð til að ræða endurnýjun samningsins.
 
6. Skipulags- og umhverfisráð - 369 - 2407004F
  • 6.1 2407042 - Umsagnarbeiðni um nýtt svæðisskipulag Vestfjarða.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.2 2407035 - Umsagnarbeiðni um vindorkugarðinn Sólheimar.
    Byggðarráð tekur undir að sjónræn áhrif fyrirhugaðra framkvæmda muni verða nokkur í Húnaþingi vestra, sérstaklega í nágrenni við Hrútafjörð, Miðfjörð og á lágheiðum.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.3 2407034 - Umsagnarbeiðni um breytingu á aðalskipulagi Húnabyggðar.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.4 2407033 - Umsagnarbeiðni um nýtt aðalskipulag Strandabyggðar.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.5 2407032 - Bessastaðir, umsókn um framkvæmdaleyfi.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.6 2407021 - Arnarvatnsheiði, umsókn um byggingarleyfi.
    Byggingafulltrúa er falið að skoða staðsetningu hússins á afstöðumynd.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.7 2406066 – Hvammstangabraut 22, umsókn um byggingarheimild
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.8 2406064 – Tjörn II, umsókn um niðurrif á fjósi
    Elín Lilja Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 15:25.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
    Elín Lilja Gunnarsdóttir kom til fundar að nýju kl. 15:28.
  • 6.9 2406042 - Strandgata 1, umsókn um stöðuleyfi.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
  • 6.10 2402006 - Hvoll 19, umsókn um byggingarheimild.
    Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 3 atkvæðum.
 
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
 
Bætt á dagskrá:
7. Tilboð til sveitarfélaga um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli – 2407056
 
Lagt fram tilboð háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis frá 2. júlí sl. um styrk til sveitarfélaga til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli í Húnaþingi vestra.
Áður en framkvæmdir hefjast á grundvelli styrks frá sjóðnum þá þarf sveitarfélagið að kanna eftirfarandi:
1. Hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast tengja styrkhæf heimilisföng á markaðslegum forsendum.
2. Hvort fjarskiptafyrirtæki hyggjast leggja og tengja eigið ljósleiðaranet í skurði/lagnaleiðir sem sveitarfélagið kostar.
Sveitarstjóra er falið að kanna ofangreint.
Með fyrirvara um niðurstöðu ofangreindrar könnunar samþykkir byggðarráð tilboð ráðuneytisins.
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:00.
Var efnið á síðunni hjálplegt?