1228. fundur

1228. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 7. október 2024 kl. 14:00 í Ráðhúsi.

Fundarmenn

Magnús Magnússon var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Sigríður Ólafsdóttir, varamaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Viktor Ingi Jónsson, varamaður.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

 

 

Varaformaður setti fund.
 
1. Lokaskýrsla 2024 - 2409091
Lokaskýrsla hátíðarinnar Elds í Húnaþingi 2024 lögð fram.
Byggðarráð þakkar skipuleggjendum Elds í Húnaþingi greinargóðar upplýsingar.
 
2. Blakfélagið Birnur - Umsókn um styrk - 2410012
Blakfélagið Birnur óskar eftir lækkun á leigu fyrir íþróttahús vegna Íslandsmóts í blaki.
Byggðarráð samþykkir niðurfellingu á leigu á íþróttahúsi vegna Íslandsmóts í blaki sem fram fer dagana 8.-10. nóvember nk.
 
3. Ráðning slökkviliðsstjóra - 2408030
Lögð fram umsóknargögn vegna ráðningar slökkviliðsstjóra.
Starf slökkviliðsstjóra var auglýst laust til umsóknar með umsóknarfresti til 1. október sl. Ein umsókn barst.
Byggðarráð samþykkir að ráða Val Frey Halldórsson í 75% starf slökkviliðsstjóra Brunavarna Húnaþings vestra frá 1. nóvember nk.
 
4. Fundargerð 952. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga - 2410003
Fundargerð 952. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27. sept. 2024 lögð fram til kynningar.
 
5. Stafræn byggingarleyfi - einn staður fyrir byggingarleyfi - 2410001
Kynning á verkefninu Stafræn byggingarleyfi lögð fram til kynningar.
 
6. Samantekt um urðaðan úrgang hjá Norðurá bs - 2410013
Samantekt um úrgangsmagn til urðunar hjá Norðurá bs. á þriðja ársfjórðungi ársins lögð fram til kynningar.
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 14:19.
Var efnið á síðunni hjálplegt?