1229. fundur

1229. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 14. október 2024 kl. 14:00 í Ráðhúsi.

Fundarmenn

Magnús Magnússon, formaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður.

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri,
Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. 

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
1. Fjárhagsáætlun 2025 - 2408023
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028 fyrir sveitarsjóð og undirfyrirtæki.
Byggðarráð samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun ársins 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028 fyrir sveitarsjóð og undirfyrirtæki til fyrri umræðu í sveitarstjórn þann 17. október 2024.
 
2. Viðverustefna Húnaþings vestra – 2409017
Viðverustefna Húnaþings vestra lögð fram til staðfestingar að afloknu umsagnarferli meðal starfsmanna sveitarfélagsins.
Áður á dagskrá 1222. fundar byggðarráðs þann 9. september sl. þar sem samþykkt var að kalla eftir umsögnum starfsmanna um stefnuna. Var það gert með fresti til 11. október sl. Ein umsögn barst sem innihélt ekki efnislegar athugasemdir. Viðverustefnan er því lögð fram í óbreyttri mynd. Byggðarráð samþykkir framlagða stefnu og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
 
3. Sala á Hlíðarvegi 25 – 2409030
Staðfesting á heimild til sölu á Hlíðarvegi 25 í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar á 371. fundi sem haldinn var þann 14. september 2023.
Byggðarráð veitir Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra, kt. 160673-3119, fullt og ótakmarkað umboð til að ganga frá sölu á íbúð að Hlíðarvegi 25, neðri hæð norður, fastanúmer 221-4010. Umboðið nær til þess að undirrita kaupsamning, uppgjör, afsal, skuldabréf og öll önnur nauðsynleg skjöl vegna sölu framangreindrar eignar.
 
4. Umsókn um styrk árið 2025 – 2410015
Hesteigendafélagið Hvammstanga óskar eftir styrk vegna framkvæmda við reiðstíga.
Byggðarráð tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að skoða málið með rekstrarstjóra.
 
5. Umsókn um lóð - Lindarvegur 1A – 2410019
Berg verktakar ehf. sækja um byggingarlóð að Lindarvegi 1A.
Byggðarráð samþykkir að úthluta Berg verktökum ehf. lóðina Lindarveg 1A, landnúmer 226-127, með þeim skilmálum sem um lóðina gilda skv. deiliskipulagi og reglum um úthlutun lóða í Húnaþingi vestra frá 1. janúar 2023.
 
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:46.
Var efnið á síðunni hjálplegt?