1232. fundur

1232. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn mánudaginn 18. nóvember 2024 kl. 14:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Magnús Magnússon, formaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, varaformaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri,
Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg
 
1. Sala á Hlíðarvegi 25 - 2409030
Opnun tilboða.
Auglýst var eftir tilboðum í fasteignina að Hlíðarvegi 25, neðri hæð norðan megin, með fresti til kl. 11, mánudaginn 18. nóvember 2024.
 
Eftirtalið tilboð barst:
Andri Freyr Bender og Anja Malagowska buðu kr. 21,7 milljónir í eignina.
 
Byggðarráð samþykkir framlagt tilboð og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi þar um með fyrirvara um endanlega fjármögnun.
 
2. Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2025-2029 - 2411023
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra óska eftir hugmyndum og tillögum sveitarfélaga að áhersluverkefnum fyrir sóknaráætlun.
Sveitarstjóra er falið að setja fram tillögur að áhersluverkefnum og senda samtökunum.
 
3. Reglur Barnaverndarþjónustu Mið - Norðurlands um veitingu fjárstyrks - breytingar á reglum - 2411024
Drög að breytingum á reglum barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands lögð fram. Reglurnar snúa að veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannskostnaðar skv. ákvæðum barnaverndarlaga.
Byggðarráð samþykkir framlagðar reglur og vísar þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar.
 
4. Beiðni um afslátt af húsaleigu vegna jólamarkaðar í Félagsheimilinu Hvammstanga - 2411028
Kristín Guðmundsdóttir óskar eftir afslætti af húsaleigu vegna jólamarkaðar.
Byggðarráð samþykkir veitingu afsláttar vegna viðburða í samfélagsþágu.
 
5. Beiðni um framlengingu leigusamnings - 2409084
Rúnar Kristjánsson óskar eftir framlengingu á leigusamningi íbúðar að Garðavegi 18 nh. til 31. janúar 2025.
Byggðarráð samþykkir framlengingu leigusamnings til 31. janúar 2025. Ekki verður um frekari framlengingar að ræða.
 
6. Fulltrúi Skógarplantna ehf. kom til fundar við byggðarráð - 2411034
Björn Líndal, fulltrúi Skógarplantna ehf, kom til fundar við byggðarráð og fór yfir stöðu verkefnisins. Byggðarráð þakkar greinargóða yfirferð.
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:22.
Var efnið á síðunni hjálplegt?