246. Fundur

246. Fundur fræðsluráðs haldinn fimmtudaginn 30. maí 2024 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður,
Elísa Ýr Sverrisdóttir, aðalmaður,
Halldór Sigfússon, aðalmaður,
Guðmundur Ísfeld, aðalmaður,
Eygló Hrund Guðmundsdóttir, aðalmaður.

Starfsmenn

Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs. 

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
 
1. Sameiginleg forvarnaáætlun á Norðurlandi vestra - 2310070
Sviðsstjóri fór yfir stöðu sameiginlegrar forvarnaáætlunar For-Nor sem er á lokametrunum. Einnig kynnt dæmi úr áætluninni.
 
2. Fræðslustjóri að láni - 2310069
Sviðsstjóri kynnti vinnu vegna verkefnisins Fræðslustjóri að láni. Könnun hefur verið send á starfsfólk sveitarfélaganna um áherslur.
 
3. Viðmið leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa. - 2405032
Lagðar fram til kynningar tillögur leikskólastjóra um viðmið Leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa. Fræðsluráð leggur til að breyta síðasta viðmiði leikskólans með þeim hætti að þeir sem þegar hafa hafið nám, eigi ekki á hættu að þurfa að gera hlé á námi sínu sæki um starfsmaður með lengri starfsaldur. Að öðru leyti eru ekki gerðar athugasemdir við þessi viðmið leikskólans.
 
4. Skóladagatal grunnskóla og tónlistarskóla 2024-2025 - 2402050
Fræðsluráð samþykkir framlagt skóladagatal sem er sameiginlegt Grunnskóla Húnaþings vestra og Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
 
5. Umsókn í Sprotasjóð febrúar 2024 - 2402025
Sviðsstjóri kynnti að umsókn í Spotasjóð um verkefni er varðar inngildingu í skólastarfi hafi verið hafnað.
 
6. Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024 - 2401004
Sviðsstjóri fór yfir helstu verkefni fjölskyldusviðs.
 
7. Fundargerðir farsældarteymis - 2310067
Lagðar fram til kynningar fundargerðir farsældarteymis frá síðasta fundi.
 

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?