Eygló Hrund Guðmundsdóttir, Halldór Sigfússon og Guðmundur Ísfeld sátu fundinn í fjarfundi. Elísa Ýr Sverrisdóttir boðaði forföll og ekki náðist í varamann.
1. Skóladagatal leikskóla 2024-2025 - 2402057
Lögð fram beiðni skólastjóra leikskóla um breytingu á skóladagatali ásamt rökstuðningi. Vilji starfsmanna og foreldra hefur verið kannaður og ekki andstaða við breytingarnar sem snúa að því að heilum starfsdögum verði fækkað og í stað þeirra verði fundartími fyrsta mánudag í mánuði frá 8:00 - 10:00 og leikskóli þar með lokaður á þeim tíma. Fræðsluráð samþykkir breytingu á skóladagatali 2024-2025.
2. Íþrótta- og tómstundamál 24-25 - 2407066
Íþrótta- og tómstundafulltrúi boðaði forföll en sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu áhersluþætti framundan í starfi íþróttamiðstöðvar og félagsmiðstöðvar samkvæmt samantekt frá íþrótta- og tómstundafulltrúa.
3. Forvarnaáætlun Norðurlands vestra - 2407065
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti forvarnaáætlun Norðurlands vestra sem fengið hefur heitið ForNor og hægt er að nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins.
4. Starfsáætlun fræðsluráðs 24-25 - 2407064
Farið yfir starfsáætlun fræðsluráðs fyrir starfsárið.
5. Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024 - 2401004
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu verkefni fjölskyldusviðs. Þar má nefna vinnu við endurmenntunaráætlun, undirbúning samfélagsmiðstöðvar, tæknismiðju (FabLab) og störf tengslafulltrúa, rafræn eyðublöð, Krakkasveifluna, stuðningsáætlanir o.fl.
Mál til afgreiðslu og í vinnslu eru 70 og einstaklingsmál eru 76. Farið var yfir helstu verkefni munnlega og til kynningar.
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:32.