248. fundur

248. fundur fræðsluráðs haldinn fimmtudaginn 26. september 2024 kl. 15:00 í Ráðhúsi.

Fundarmenn

Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður,
Halldór Sigfússon, aðalmaður,
Guðmundur Ísfeld, aðalmaður,
Ingi Hjörtur Bjarnason, varamaður,
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir, varamaður. 

Starfsmenn

Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.
Lögð var fram tillaga að breytingu á dagskrárliðum vegna forfalla. Liður 4 verður að lið nr. 1. Samþykkt samhljóða. Pálína Fanney Skúladóttir mætti til fundar kl. 15:00
 
1. Tónlistarskóli Húnaþings vestra - starfið 2024-2025 - 2409060
Skólastjóri tónlistarskóla fór yfir starfsemi tónlistarskólans og veturinn framundan. Nemendafjöldi er 82, þar af 8 nemendur í forskólahóp í leikskóla. Tölverðar breytingar eru í starfsmannahópnum en starfsmenn eru 8. Helstu breytingar eru hóptímar þar sem unnið er með samspil í hljómsveit. Aukið hefur verið við hljóðfærasafn skólans. Einnig var greint frá að ný aðalnámskrá tónlistarskóla er í vinnslu og skólinn fylgist með þeirri vinnu.
Pálína Fanney vék af fundi kl. 15:18
 
2. Leikskólinn Ásgarður - starfið 2024-2025 - 2409059
Skólastjóri leikskóla boðaði forföll og dagskrárlið er því frestað.
 
Eydís Bára Jóhannsdóttir, Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og Harpa Hallgrímsdóttir mættu til fundar kl.15:19. Elsche Oda Apel mætti til fundar kl. 15:20.
 
3. Menntastefna Húnaþings vestra - 2409061
Skólastjórnendur grunnskóla fóru yfir helstu atriði af sameiginlegum starfsdegi grunn- leik- og tónlistarskóla þar sem menntastefna var rýnd. Þar var unnið með hugmyndir eins og umhverfisdaga, útikennslusvæði og bókadag. Einnig var ákveðið að í stað þess að gera sérstaka framkvæmdaáætlun verði hún samþætt umbótaáætlunum skólanna. Verið er að undirbúa markmið í heilsueflandi skóla sem tengjast menntastefnunni beint.
 
4. Grunnskóli Húnaþings vestra - starfið 2024-2025 - 2409058
Skólastjórnendur grunnskóla fór yfir starfsemi grunnskólans og veturinn framundan. Nemendafjöldi er 123 og starfsmenn er um 40. Færri stuðningsfulltrúar eru við störf en fleiri kennarastöður til að efla stoðþjónustu.
Skólastjórnendur sögðu frá valgreinadegi, menntabúðum, árshátíð o.fl. Skólinn tekur þátt í stóru Erasmus verkefni er varðar námsefni um loftslagsmál. Fjórir nemendur taka þátt, tveir starfsmenn úr skólanum og tveir starfsmenn frá Selasetri Íslands. Pönnuvöllur er kominn á lóðina og von er á klifurvegg innanhúss sem er gjöf frá Kvenfélaginu Björk. Símalaus skóli gengur vel og hefur mjög góð áhrif á samskipti og staðblæ í skólanum.
Eydís Bára, Guðrún Ósk, Elsche og Harpa véku af fundi kl. 15:45
 
Sigurður Guðmundsson mætti til fundar kl. 15:54
 
5. Skólabúðirnar að Reykjum - starfið 2024-2025 - 2409057
Forstöðumaður Skólabúða á Reykjum fór yfir starfsemi skólabúðanna og veturinn framundan. Nemendafjöldi er um 3600 á ári, og starfsmenn eru 9. Starfið er með svipuðu sniði og síðasta ár og ánægja hjá kennurum og nemendum sem sækja starfið.
Sigurður Guðmundsson vék af fundi kl. 16:33
 
6. Fundargerðir farsældarteymis - 2310067
Fundargerðir farsældarteymis lagðar fram til kynningar.
 
7. Helstu verkefni Fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024 - 2401004
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir helstu verkefni á fjölskyldusviði frá síðasta fundi. Þar má nefna bækling/samantekt um frístundastarf í Húnaþingi vestra, samfélagsmiðstöð, íbúafund og fundi með nemendum, skýrslur vegna styrkja sem veittir voru vegna Krakkasveiflunnar, Klúbbastarf á skólatíma, þjónustukönnun og starfsmannakönnun Íþróttamiðstöðvar, endurmenntunaráætlun og starfsáætlun. Mál til afgreiðslu og í vinnslu voru 77 og einstaklingsmál 77.
 
 
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt Fundi slitið kl. 17:00.
Var efnið á síðunni hjálplegt?