249. Fundur

249. Fundur fræðsluráðs haldinn fimmtudaginn 31. október 2024 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Elín Lilja Gunnarsdóttir, formaður,
Elísa Ýr Sverrisdóttir, varaformaður,
Halldór Sigfússon, aðalmaður,
Guðmundur Ísfeld, aðalmaður,
Eygló Hrund Guðmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

Sigurður Þór Ágústsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs.

Fundargerð ritaði: Sigurður Þór Ágústsson
 
1. Rekstrarúttekt leikskóla og grunnskóla - 2410025
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs um rekstrarúttekt á grunnskóla og leikskóla. Tilboð barst frá þremur aðilum og fræðsluráð leggur til við sveitarstjórn að tilboði lægstbjóðanda, Ásgarðs skólaþjónustu, verði tekið. Tilboðið uppfyllir öll þau markmið sem úttektinni er ætlað að ná.
 
2. Starfsáætlun fjölskyldusviðs 2025 - 2409083
Lögð fram til kynningar.
 
3. Starfsáætlun leikskóla 2025 - 2410051
Lögð fram til kynningar.
 
4. Starfsáætlun grunnskóla 2025 - 2410052
Lögð fram til kynningar.
 
5. Starfsáætlun tónlistarskóla 2025 - 2410053
Lögð fram til kynningar.
 
6. Starfsáætlun íþróttamiðstöðvar og Órion 2025 - 2410054
Lagðar fram til kynningar.
 
7. Helstu verkefni fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024 - 2401004
Í október 2024 voru 77 mál til afgreiðslu og/eða vinnslu hjá fjölskyldusviði samkvæmt verkefnaskrá. Einstaklingsmál voru 47.
 
Helstu verkefni voru stytting vinnuviku, stefna og aðgerðaráætlun um vellíðan án tóbaks, áfengis og annarra vímuefna, svæðisbundin farsældarráð, reglur um stuðnings- og stoðþjónustu, reglur um akstursþjónustu, gott að eldast, farsæld barna, félagsþjónusta, undirbúningur samfélagsmiðstöðvar, barnavernd, undirbúningur samantektar um frístundastarf, skýrsla um krakkasveifluna, fræðslustjóri að láni o.fl.
 
Sviðsstjóri sagði einnig frá verkefninu Öruggara Norðurland vestra.
 
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:25.
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?