Dagskrá:
1. Úthlutun fjármagns til viðhalds samgönguleiða.
Borist hefur bréf frá Vegagerðinni, þar sem fram kemur að samþykkt hafi verið úthlutun til styrkvega árið 2020 kr. 3.500.000. Í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins árið 2020 er samþykkt að veita kr. 2.800.000 til styrkvega. Til viðhalds styrkvega á árinu 2020 eru því kr. 6.300.000 til úthlutunar.
Eftirfarandi tillaga um skiptingu fjárins var samþykkt samhljóða:
a) Til afréttarvegar á Víðidalstunguheiði kr. 2.800.000
b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.550.000
c) Til afréttavega í Hrútafirði austur kr. 750.000
d) Til vegar yfir Brandagilsháls kr. 300.000
e) Til vegar upp á Vatnsnesfjall kr. 300.000
f) Til afréttavega í Hrútafirði vestur kr. 600.000
Viðkomandi fjallskilastjórnir sjái um framkvæmdir á afréttarvegum hver á sínu svæði að öðru leyti en því að sveitarstjóra er falið að fá verktaka í viðhald vegar yfir Brandagilsháls.
Fundargerð upplesin, fundi slitið kl. 13:35