212. fundur

212. fundur landbúnaðarráðs Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 14. ágúst 2024 kl. 13:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Sigríður Ólafsdóttir, formaður,
Dagný Ragnarsdóttir, varaformaður,
Halldór Pálsson, aðalmaður,
Stella Dröfn Bjarnadóttir, aðalmaður. 

Starfsmenn

Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagbjört Diljá Einþórsdóttir boðaði forföll og varamaður hennar hafði ekki tök á að sækja fundinn.

1.

Samantekt um ágangsmál - 2407037

 

Lögð fram til kynningar samantekt Jóns Guðmanns Péturssonar um ágangsmál.

 

   

Sigríður Ólafsdóttir vék af fundi kl. 13:05 og Dagný Ragnarsdóttir varaformaður tók við fundarstjórn.

2.

Fyrirkomulag gæsaveiða í Húnaþingi vestra haustið 2024 - 2408005

 

Samþykkt að hafa fyrirkomulag gæsaveiða óbreytt frá fyrra ári.
Gæsaveiðar 2024 verða með eftirfarandi hætti:
Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði er að kaupa leyfi á þremur svæðum;
a. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnártungu.
b. Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
c. Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.
Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2024. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.
Leyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag.
Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.
Með vísan til 7. gr. Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.
Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.

 

   

3.

Fyrirkomulag rjúpnaveiða í Húnaþingi vestra haustið 2024 - 2407055

 

Samþykkt að hafa fyrirkomulag rjúpnaveiða óbreytt frá fyrra ári og verður með eftirfarandi hætti haustið 2024.
Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagins. Í boði verða tvenns konar leyfi sem gefin verða út á jafnmörg svæði, en þau eru;
a) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnártungu (svæði 1).
b) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru (svæði 2).
Hvert veiðileyfi sem selt er gildir á veiðitíma rjúpu sem umhverfisráðuneytið gefur út vegna ársins 2024 og veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma. Um er að ræða sölu á dagsleyfum.
Veiðileyfin verða til sölu hjá Hallfríði Ólafsdóttur í Víðidalstungu. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 11.000 á dag.
Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við 4 byssur á dag, en 5 byssur á svæði 2. Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.
Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Veiðileyfið veitir því ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.
Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er ákveðið og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.

Sigríður Ólafsdóttir kom aftur til fundar kl. 13:10 og tók við fundarstjórn að nýju.

 

   

4.

Veiðieftirlit vegna gæsa- og rjúpnaveiða haustið 2024 - 2408006

 

Samþykkt að veiðieftirlit verði með sama hætti og undanfarin ár. Lagður fram samningur við eftirlitsmann, Júlíus Guðna Antonsson, um eftirlitið. Landbúnaðarráð samþykkir samninginn.

 

   

5.

Greinargerð fjallskiladeildar Miðfirðinga vegna heiðargirðinga 2023 - 2407062

 

Lögð fram til kynningar. Landbúnaðarráð þakkar samantektina.

 

   

6.

Greinargerð fjallskiladeildar Víðdælinga vegna heiðargirðinga 2023 - 2407063

 

Lögð fram til kynningar. Landbúnaðarráð þakkar samantektina.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 13:21.

Var efnið á síðunni hjálplegt?