214. fundur

214. fundur landbúnaðarráðs Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 6. nóvember 2024 kl. 13:00 í Ráðhúsi.

Fundarmenn

Sigríður Ólafsdóttir, formaður
Halldór Pálsson, aðalmaður
Guðmundur Ísfeld, varamaður

Starfsmenn

Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
 
Ármann Pétursson og Ingveldur Linda Gestsdóttir boðuðu forföll.
 
1. Vetrarveiði á ref veturinn 2024-2025 - 2409085
Lagðar fram umsóknir um vetrarveiði á ref veturinn 2024-2025.
Auglýst var eftir aðilum til vetrarveiði á ref með umsóknarfresti til 1. nóvember sl.
Eftirfarandi umsóknir bárust:
Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða á Miðfjarðasvæði.
Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að gera samninga við umsóknaraðila, þ.e.:
Sigfús Heiðar Árdal Jóhannsson, vegna veiða í Víðidal.
Bjarni Kristmundsson, vegna veiða í austanverðum Hrútafirði.
Elmar Baldursson, vegna veiða á Vatnsnesi.
Þorbergur Guðmundsson, vegna veiða á Miðfjarðasvæði.
Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra jafnframt að auglýsa aftur þau svæði sem engar umsóknir bárust um.
 
2. Uppgjör sumarvinnu fjallskiladeilda - 2409086
Lagt fram uppgjör á sumarvinnu fjallskiladeilda.
Lagt fram til kynningar uppgjör vegna styrkvega og heiðagirðinga 2024.
 
 
3. Uppgjör refa- og minkaveiði 2024 - 2409087
Lagt fram uppgjör á refa- og minkaveiði árið 2024.
Lagðar fram upplýsingar um refa- og minkaveiði frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024.
Heildarkostnaður vegna refa- og minkaveiði á þessu tímabili er alls kr. 8.461.240. Unnin grendýr eru 83, yrðlingar 188 og hlaupadýr 146.
 
4. Vörsluskylda búfjár - ályktun frá Skógræktarfélagi Íslands - 2410045
Ályktun lögð fram til kynningar.
 
 
5. Starfsáætlun landbúnaðarráðs 2025 - 2410048
Lögð fram drög að starfsáætlun Landbúnaðarráðs fyrir árið 2025.
Lögð fram drög að starfsáætlun landbúnaðarráðs fyrir árið 2025, þar sem helstu verkefni ráðsins eru tilgreind.
 
Landbúnaðarráð samþykkir starfsáætlun landbúnaðarráðs með áorðnum breytingum fyrir árið 2025.
 
 
 
Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 13:28.
Var efnið á síðunni hjálplegt?