369. fundur

369. fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn fimmtudaginn 1. ágúst 2024 kl. 15:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson, formaður
Fríða Marý Halldórsdóttir
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Starfsmenn

Bogi Magnusen Kristinsson, skipulags- og byggingafulltrúi,
Elísa Ýr Sverrisdóttir

Fundargerð ritaði: Elísa Ýr Sverrisdóttir.

1. Umsagnarbeiðni um nýtt svæðisskipulag Vestfjarða. - 2407042

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða óskar eftir umsögn við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:

Svæðisskipulag Vestfjarða, nr. 0603/2024: Lýsing (Nýtt svæðisskipulag)

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við lýsingu á Svæðisskipulagi Vestfjarða, nr. 0603/2024.

   

2. Umsagnarbeiðni um vindorkugarðinn Sólheimar. - 2407035

Vindorkugarðurinn Sólheimar, nr. 0852/2024: Kynning umhverfismatsskýrslu (Mat á umhverfisáhrifum).
Qair Iceland áformar að reisa 209 MW vindorkugarð með 29 vindmyllum sem verða allt að 200 m á hæð í landi Sólheima í Dalabyggð.

Umhverfismat á áhrifum á landslag og ásýnd fyrir vindorkugarðinn Sólheima sýnir að fyrirhugaðar framkvæmdir munu hafa veruleg áhrif á landslag og sjónræna ásýnd í Húnaþingi vestra, sérstaklega í nágrenni við Hrútafjörð, Miðfjörð og á lágheiðum. Sjónræn áhrif verða mikil við ákveðnar sjónlínur þar sem vindmyllurnar yrðu sýnilegar.
Það er jákvætt að matið tekur til ýmissa sjónarhorna og veitir innsýn í möguleg áhrif á bæði nær- og fjarlægðarsýn. Þetta hjálpar til við að skilja hvernig framkvæmdin mun hafa áhrif á mismunandi hluta svæðisins og hversu mikil þau áhrif kunna að vera.
Viðfangsefni matsins er að meta neikvæð áhrif og koma með raunhæfar tillögur um mótvægisaðgerðir.
Á heildina litið er umhverfismatið fyrir vindorkugarðinn Sólheima gott og veitir mikilvægar upplýsingar fyrir hagsmunaaðila.

   

3. Umsagnarbeiðni um breytingu á aðalskipulagi Húnabyggðar. - 2407034

Breytingin er til komin vegna áforma Vegagerðarinnar að endurbyggja hluta Vatnsdalsvegar og hluta Svínvetningarbrautar en framkvæmdin er í undirbúningi. Breyting á aðalskipulagi felst í því að þrjú ný efnistökusvæði verða skilgreind í aðalskipulagi auk þess sem lýsing á einu efnistökusvæði breytist.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022.

   

4. Umsagnarbeiðni um nýtt aðalskipulag Strandabyggðar. - 2407033

Um er að ræða heildarendurskoðun gildandi aðalskipulags Strandabyggðar 2010-2022. Síðan að gildandi skipulag var samþykkt hafa ýmsar forsendur tekið breytingum s.s. atvinnulíf og fólksfjöldi og ýmis ný tækifæri og áskoranir litið dagsins ljós. Kynning tillögu á vinnslustigi (nýtt aðalskipulag) aðalskipulag Strandabyggðar 2021-2033, nr. 0675/2024.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemdir við endurskoðun á aðalskipulagi Strandabyggðar 2021-2033

   

5. Bessastaðir, umsókn um framkvæmdaleyfi. - 2407032

Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir gerð vegaslóða og plön, staðsetningu á loftnetum og legu kapla í landi Bessastaða.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að heimila framkvæmdaleyfi sem er í samræmi við deiliskipulag 16.04.2009 í landi Bessastaða á Heggstaðanesi.

   

6. Arnarvatnsheiði, umsókn um byggingarleyfi. - 2407021

Veiðifélag Arnarvatnsheiðar og Tvídægru sækir um byggingarleyfi fyrir 30,8 m² frístundarhúsin á Arnarvatnsheiði L186503.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir.

   

7. Umsókn um byggingarheimild - 2406066

Sigrún Þórisdóttir sækir um byggingarheimild fyrir breytingu á þaki á Hvammstangabraut 22 L144296.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir þar sem að fyrir liggur samþykki aðliggjandi nágranna að Hvammstangabraut 20.

   

8. Umsókn um niðurrif á fjósi - 2406064

Elmar Baldursson sækir um niðurrif á fjósi mhl. 05 á Tjörn 2 L2134951.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugað niðurrif.

   

9. Strandgata 1, umsókn um stöðuleyfi. - 2406042

Kaupfélag vestur Húnvetninga sækir um stöðuleyfi fyrir fóðurtank við Strandgötu 1 L144403

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðið stöðuleyfi til eins árs.

   

10. Hvoll 19, umsókn um byggingarheimild. - 2402006

Guðjón Gíslason sækir um byggingarheimild fyrir 42,7 m² stækkun á sumarhúsi á Hvoli lóð nr. 19 L193268.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir.

Var efnið á síðunni hjálplegt?