370. fundur

370. fundur skipulags- og umhverfisráðs haldinn fimmtudaginn 3. október 2024 kl. 14:00 Ráðhúsi.

Fundarmenn

Ingimar Sigurðsson, formaður,
Birkir Snær Gunnlaugsson
Fríða Marý Halldórsdóttir
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

Starfsmenn

Bogi Magnusen Kristinsson, skipulags- og byggingafulltrúi,
Elísa Ýr Sverrisdóttir, embættismaður. 

Fundargerð ritaði: Elísa Ýr Sverrisdóttir.

1.

Búland, breyting á deiliskipulagi. - 2406007

 

Breytingu á deiliskipulagi Búlands á lóð Búlands 6. Um er að ræða stækkun lóðar frá 1.609m² í 4648 m² ásamt byggingarreit. Afmörkun skipulagssvæðis stækkar úr 9.6 ha í 9.7 ha til austurs til samræmis við stækkun lóðrinnar.

 

Skipulagstillagan hefur verið auglýst frá 31. júlí til 13. september 2024.
Engar athugasemdir bárust á auglýstum tíma.

Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Rarik, Mílu og Skipulagsstofnun.

Míla og Rarik óska eftir því að samráð sé haft þegar framkvæmdir hefjast.

Nefndin tekur undir það að samráð sé unnið með veituaðilum.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna skv.1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

 

   

2.

Austan Norðurbrautar, breyting á deiliskipulagi. - 2406008

 

Skipulagstillagan hefur verið auglýst frá 31. júlí til 13. september 2024.
Engar athugasemdir bárust á auglýstum tíma.

Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, Vegagerðinni, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands, Rarik, Mílu og Skipulagsstofnun.

Míla og Rarik óska eftir því að samráð sé haft áður en framkvæmdir hefjast á lóðinni.

Nefndin tekur undir það að samráð sé unnið með veituaðilum.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna skv.1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

 

   

3.

Kvíslatunguvirkjun, umsagnarbeiðni. - 2409090

 

Strandabyggð óskar eftir umsögn fyrir nýju deiliskipulagi fyrir Kvíslatunguvirkjun.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera engar athugasemdir við skipulagstillöguna.

 

   

4.

Borgarbyggð, ósk um umsögn vegna endurskoðunar Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037 - 2307010

 

Borgarbyggð óskar eftir umsögn vegna endurskoðunar Aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að gera engar athugasemdir við endurskoðun aðalskipulags Borgarbyggðar 2025-2037.

 

   

5.

Gilsbakki og Árbakki, hnitsetning lóða. - 2408003

 

Húnaþing vestra sækir um samþykki fyrir hnitsettum lóðum á Gilsbakka og Árbakka samkvæmt uppdrætti gerðum af Káraborg ehf. dagsettum þann 01.10.2024.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja hnitsetningu lóða.

 

   

6.

Pétursstaðir, umsókn um byggingarleyfi. - 2409011

 

Fasteignafélagið Ebba ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjórum 38,8 m² frístundahúsum á Pétursstöðum L236503.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir.

 

   

7.

Tómasarbær, fyrirspurn um byggingarlóð. - 2409089

 

Lokka ehf. sendir inn fyrirspurn varðandi stofnun byggingarreits á lóð Tómasarbæ L221111.

 

Skipulags- og umhverfisráð hafnar erindinu um stofnun lóðar undir byggingu vélageymslu/skemmu í gamla þorpinu á Borðeyri. Með hliðsjón af verndarsvæði í byggð sem unnin var 2018 um elsta hluta Borðeyrar "plássið" samkvæmt lögum nr. 87/2015 og reglugerð nr. 575/2016, er mikilvægt að viðhalda menningarsögulegu gildi verslunarstaðarins. Nefndin telur að slíkt mannvirki myndi rýra heildarásýnd svæðisins og stefna í hættu varðveislu sögulegs arfleifðar, sem er lykilatriði í framtíðaruppbyggingu Borðeyrar sem verndarsvæðis.

Skipulagsfulltrúa er falið að vinna með málsaðilum um möguleika á byggingarreit sem er í eigu sveitarfélagsins á Borðeyri sem er utan verndarsvæðis.

 

   

8.

Óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi Kirkjuhvamms á Hvammstanga - 2410006

 

Óskað er eftir breytingum á reiðstíg við Jónströð 7. Í gildandi deilsikipulagi er reiðstígur staðsettur vestan við Jónströð 7 og færist austan megin við lóðina og liggi að Hallartröð.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna deiliskipulagsbreytinguna skv.2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna þarf fyrir eigendum að Þórðartröð 10, Garðarströð 1, Jónströð 6.7.8 og Hallartröð 2.

 

   

9.

Laxárdalur 2, umsókn um byggingarheimild. - 2410009

 

Jóhann Ragnarsson sækir um byggingarheimild fyrir 97,3 m² viðbyggingu við mhl 05 á fjárhúsum á Laxárdal 2 L142210.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir.

 

   

Formaður leggur til að færa fundartíma og verða fundir nefndarinnar framvegis kl 13:00.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð upplesin og samþykkt Fundi slitið kl. 15:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?