381. fundur

381. fundur Sveitarstjórnar Húnaþings vestra haldinn miðvikudaginn 8. maí 2024 kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti,
Magnús Magnússon, varaoddviti,
Sigríður Ólafsdóttir, aðalmaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður,
Þorgrímur Guðni Björnsson, aðalmaður,
Ingimar Sigurðsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Borghildur Haraldsdóttir, varamaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Ingveldur Ása Konráðsdóttir, varamaður. 

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri,
Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. 

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

1.

Byggðarráð - 1211 - 2404013F

 

Fundur haldinn 22. apríl. Fundargerð í 10 liðum. Formaður kynnti.

 

1.1

2403051 - Rekstrarstjóri kemur til fundar

   
 

1.2

2404092 - Trúnaðarmál

   
 

1.3

2404102 - Tilkynning frá Óbyggðanefnd um málsmeðferð vegna eyja og skerja

   
 

1.4

2404094 - Samningur um gagnkvæma aðstoð milli Brunavarna Húnaþings vestra og Brunavarna A-Hún

 

Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

1.5

2404107 - Aðalfundur Veiðifélags Víðidalsár þann 25. apríl 2024

   
 

1.6

2404105 - Niðurstöður könnunar á starfsemi slökkviliða

   
 

1.7

2404112 - Aðalfundur Landskerfis bókasafna 7. maí 2024

   
 

1.8

2404095 - Fundargerð 105. fundar stjórnar SSNV sem fram fór þann 2. apríl 2024

   
 

1.9

2404113 - Ársreikningur Hafnasambandsins fyrir árið 2023

   
 

1.10

2403059 - Fulltrúar Náttúrustofu Norðurlands vestra koma til fundar

   

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

2.

Byggðarráð - 1212 - 2404017F

 

Fundur haldinn 29. apríl. Fundargerð í 4 liðum. Formaður kynnti.


 

2.1

2401093 - Endurnýjun hitaveitulagna Höfðabraut 2024

 

Borghildur Haraldsdóttir vék af fundi kl. 15:09.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Borghildur Haraldsdóttir kom aftur til fundar kl. 15:13.

 

2.2

2404118 - Beiðni innviðaráðuneytis um umsögn um ósk Landsnets um skipan raflínunefndar vegna Holtavörðurheiðarlína 1 og 3

   
 

2.3

2404117 - Umsagnarbeiðni um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál, umsagnarfrestur til 3. maí 2024

   
 

2.4

2404116 - Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál, umsagnarfrestur til 3. maí 2024.

   

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

3.

Skipulags- og umhverfisráð - 367 - 2404020F

 

Fundur haldinn 2. maí. Fundargerð í 5 liðum. Oddviti kynnti.

 

3.1

2404109 - Mörk beitarland, umsókn um leiðréttingu stærðar.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

3.2

2404108 - Gamla Mörk, umsókn um stofnun lóðar.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

3.3

2404106 - Mörk, hnitsetning jarðar.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

3.4

2404093 - Lindarvegur 12, umsókn um byggingarleyfi

 

Borghildur Haraldsdóttir vék af fundi kl. 15:14.
Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 6 atkvæðum.
Borghildur Haraldsdóttir kom aftur til fundar kl. 15:16.

 

3.5

2404099 - Þórðartröð 8, umsókn um breytingu á deiliskipulagi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

4.

Fræðsluráð - 245 - 2403004F

 

Fundur haldinn 18. apríl. Fundargerð í 9 liðum. Oddviti kynnti.

 

4.1

2403044 - Leiðbeinandi verklag vegna undirmönnunar í leikskólanum Ásgarði

   
 

4.2

2403063 - Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Vestra vegna leikskóla 12. mars 2024

   
 

4.3

2403047 - Efni Hljóðvist í skólum

   
 

4.4

2404076 - Eineltisáætlun Grunnskóla Húnaþings vestra

   
 

4.5

2402034 - Eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Vestra vegna grunnskóla 31. janúar 2024

   
 

4.6

2403038 - Umsókn í Lýðheilsusjóð 2024

   
 

4.7

2310067 - Fundargerðir farsældarteymis

   
 

4.8

2402057 - Skóladagatal leikskóla 2024-2025

   
 

4.9

2402050 - Skóladagatal grunnskóla og tónlistarskóla 2024-2025

 

Borghildur Haraldsdóttir, Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Magnús Vignir Eðvaldsson véku af fundi kl. 15:19.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir að ekki verði boðið upp á frístund í jóla- og páskaleyfum enda hefur nýting á þessum tíma verið mjög lítil og oft undir lágmarksskráningu. Einnig er samþykkt að frístund verði lokuð á starfsdegi í janúar vegna endurmenntunar starfsmanna. Á öðrum starfs- og/eða viðtalsdögum verði frístund opin.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum.

Borghildur Haraldsdóttir, Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Magnús Vignir Eðvaldsson komu aftur til fundar kl. 15:22.

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkti með 7 atkvæðum.

 

   

5.

Öldungaráð - 9 - 2403005F

 

Fundur haldinn 18. apríl. Fundargerð í 3 liðum. Oddviti kynnti.

 

5.1

2310068 - Gott að eldast

   
 

5.2

2404100 - Framtíðarhúsnæði fyrir félagsstarf eldri borgara

   
 

5.3

2404101 - Hálkuvarnir við Nestún og víðar

   

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

Þorgrímur Guðni Björnsson vék af fundi kl. 15:25.

6.

Beiðni um lausn úr sveitarstjórn - 2404129

 

Lagt fram erindi frá Þorgrími Guðna Björnssyni sveitarstjórnarmanni þar sem hann óskar eftir lausn úr sveitarstjórn, ráðum og nefndum Húnaþings vestra frá 31. maí 2024 til loka kjörtímabils með vísan til 1. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 23. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024 vegna flutninga úr sveitarfélaginu. Varamaður hans í sveitarstjórn Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir tekur hans sæti í sveitarstjórn.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir beiðni Þorgríms Guðna um lausn úr sveitarstjórn. Eru honum færðar bestu þakkir fyrir störf sín í þágu sveitarfélagsins og óskað velfarnaðar í verkefnum sínum í framtíðinni.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

Þorgrímur Guðni Björnsson kom aftur til fundar kl. 15:27.

 

   

7.

Beiðni um leyfi frá störfum í sveitarstjórn - 2404130

 

Lagt fram erindi frá Hallfríði Sigurbjörgu Óladóttur þar sem hún óskar leyfis frá störfum sveitarstjórnar til 31. desember 2024 vegna óhóflegs álags í samræmi við 2. mgr. 30.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 23. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir beiðni Hallfríðar Sigurbjargar um leyfi frá störfum til 31. desember 2024. Viktor Ingi Jónsson varamaður hennar tekur sæti hennar í sveitarstjórn á meðan á leyfi stendur.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

8.

Kosningar - 2403032

 

Fjallskiladeild Vatnsnesinga.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Endurtilnefning í fjallskiladeild Vatnsnesinga:
Aðalmenn:
Halldór Líndal Jósafatsson formaður
Ágúst Þorbjörnsson
Indriði Karlsson
Varamenn:
Þormóður Heimisson
Kolbrún Stella Indriðadóttir
Kolfinna Rún Gunnarsdóttir.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Endurtilnefning í stjórn Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn tilnefnir Guðrúnu Gróu Þorsteinsdóttur sem aðalmann í stjórn Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Endurtilnefning varamanns í stjórn Áhugamannafélags um endurbyggingu Riishúss.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn tilnefnir Magnús Vigni Eðvaldsson sem varamann í stjórn Áhugamannafélags um endurbyggingu Riishúss.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

9.

Starfsemi Ráðhúss - 2405006

 

Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs þar sem farið er yfir tillögu að breytingu á starfi í afgreiðslu Ráðhússins, bæði hvað varðar starfshlutfall og verkefni. Kostnaðarauki er áætlaður um 500 þúsund á árinu 2024. Einnig er óskað eftir heimild til að minnka opnunartíma í sumar vegna undirmönnunar og varanlegri styttingu opnunartíma Ráðhúss frá og með hausti.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir ósk sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs um breytingu á starfi frá 1. september nk., ásamt minni opnunartíma Ráðhúss. Sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er falið að undirbúa gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna breytinga á starfinu.“

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

10. 

Ársreikningur Húnaþings vestra 2023 - síðari umræða - 2404000

 

Ársreikningur Húnaþings vestra lagður fram til seinni umræðu ásamt endurskoðunarskýrslu KPMG. Ársreikningurinn samanstendur annars vegar af upplýsingum um A-hluta sveitarsjóðs og hins vegar um A- og B-hluta samantekinn. Til A-hluta telst sú starfsemi sveitarfélagsins sem er að hluta eða öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum, þ.e. aðalsjóður, eignasjóður og þjónustumiðstöð sveitarfélagsins. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, þ.e. Fráveita, Vatnsveita, Hitaveita, Hafnarsjóður, Félagslegar íbúðir og Reykjaeignir ehf.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagðan ársreikning sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2023.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Helstu niðurstöður ársreiknings Húnaþings vestra árið 2023 eru:

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um kr. 77,6 milljónir, en í fjárhagsáætlun ársins með viðaukum var gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta að fjárhæð kr. 86 milljónir. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um kr. 63,9 milljónir en fjárhagsáætlun A-hluta ásamt viðaukum gerði ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu um kr. 89,1 milljónir. Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs og undirfyrirtækja er því umtalsvert betri en fjárhagsáætlun ársins gaf til kynna. Rétt er að geta þess að söluhagnaður rekstrarfjármuna árið 2023 var kr. 64,4 milljónir sem er óvanalegt í rekstri sveitarfélagsins.

Breyting á lífeyrisskuldbindingum A- og B-hluta var kr. 23,1 milljónir samanborið við kr. 21,5 milljón árið 2022.

Handbært fé frá rekstri A- og B-hluta var kr. 143,1 milljónir, en árið 2022 var það kr. 140,2 milljónir.

Þrátt fyrir kr. 250 milljóna áætlaða lántöku árið 2023 tók hvorki A- eða B-hluti lán það ár. Þess í stað var ákveðið að ganga frekar á stöðu handbærs fjár. Handbært fé lækkaði því um kr. 67,3 milljónir frá árinu 2022 en í árslok 2023 var það kr. 231,6 milljónir. Afborganir langtímalána A- og B-hluta hækkuðu nokkuð árið 2023 og voru kr. 127,1 milljónir á sama tíma og afborganirnar voru kr. 99,6 milljónir árið 2022.

Skuldahlutfall A- og B-hluta var 68,4% samanborið við 83,6% árið 2022. Í hefðbundnu árferði ber sveitarfélögum að sjá til þess að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta séu ekki hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum. Húnaþing vestra er því langt undir því marki.

Langtímaskuldir A- og B-hluta voru kr. 962,9 milljónir í árslok 2023, samanborið við kr. 1.002,2 milljónir árið 2022.

Veltufé A- og B-hluta frá rekstri var kr. 211,2 milljónir, eða 9,4% í hlutfalli við rekstrartekjur. Árið 2022 var veltufé frá rekstri kr. 94,1 milljónir, eða 5,1% í hlutfalli við rekstrartekjur.

Veltufjárhlutfall A-hluta var 2,69, samanborið við 2,70 árið 2022.

Laun, launatengd gjöld og breyting lífeyrisskuldbindingar A-hluta voru 51,0% í hlutfalli við rekstrartekjur, samanborið við 56,0% árið 2022.
Fjárfestingar á árinu 2023 voru kr. 194,9 milljónir, samanborið við kr. 170,8 milljónir árið 2022. Stærstu fjárfestingar ársins 2023 voru endurbætur lagna við íþróttamiðstöðina og lagning nýrrar vatnsveitu til Laugarbakka.

Ljóst er að rekstur sveitarfélaga í landinu er almennt þungur, vegna þróunar á stýrivöxtum og hárrar verðbólgu. Þróun lífeyrisskuldbindinga hefur einnig verið íþyngjandi fyrir sveitarfélögin ásamt áframhaldandi tapi á rekstri málefna fatlaðs fólks. Annar rekstur sveitarsjóðs er í jafnvægi og stendur undir skuldbindingum sveitarfélagsins. Skuldir fara jafnframt lækkandi. Þrátt fyrir þetta er engu að síður mikilvægt að sýna áframhaldandi ráðdeild í rekstri og þarf sveitarstjórn að halda sig innan ramma fjármálareglna sveitarfélaga, sem um tíma var vikið til hliðar vegna áhrifa heimsfaraldurs. Fjármálareglur taka annars vegar til jafnvægisreglu sem segir að samanlögð heildarútgjöld til rekstrar A- og B-hluta í reikningsskilum séu á hverju þriggja ára tímabili ekki hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum. Hins vegar er um að ræða skuldareglu, þ.e. að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum séu ekki hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum. Fjármálareglurnar taka gildi að nýju árið 2026 og jafnvægisreglan vegna fjárhagsáætlunar ársins 2026 mun taka til rekstrarniðurstöðu áranna 2024, 2025 og áætlunar 2026. Skuldareglan mun taka mið af skuldum og skuldbindingum í lok árs 2026, en Húnaþingi vestra hefur tekist að vera langt undir því viðmiði hin síðari ár.

Lykiltölur ársreiknings sveitarsjóðs Húnaþings vestra, standast nú að nýju viðmið eftirlitsnefndar sveitarfélaga sem heimilt var að víkja frá vegna áhrifa heimsfaraldurs.

Niðurstaða ársreiknings er afar jákvæð og sýnir hraðari viðsnúning í rekstri í kjölfar heimsfaraldurs en vonast hafði verið til og það þrátt fyrir óhagstætt efnahagsumhverfi. Þetta má að mestu leyti þakka skynsamri fjármálastjórn undanfarinna ára, lágmarks lántökum og almennri ráðdeild í rekstri. Sveitarstjórn vill koma á framfæri þökkum til forstöðumanna stofnana sveitarfélagsins fyrir aðgæslu í rekstri sinna eininga sem skýrir að nokkru leyti jafnvægi í rekstri sveitarfélagsins. Væntir sveitarstjórn áframhaldandi góðs samstarfs við forstöðumenn, sem hafa sýnt nauðsyn forgangsröðunar verkefna einstakan skilning.

 

   

11.

Skýrsla sveitarstjóra - 2311018

 

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:00.

Var efnið á síðunni hjálplegt?