382. fundur

382. fundur Sveitarstjórnar Húnaþings vestra haldinn fimmtudaginn 13. júní 2024 kl. 15:00 í fundarsal Ráðhússins.

Fundarmenn

Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti,
Magnús Magnússon, varaoddviti,
Sigríður Ólafsdóttir, aðalmaður,
Magnús Vignir Eðvaldsson, aðalmaður,
Elín Lilja Gunnarsdóttir, aðalmaður,
Ingimar Sigurðsson, aðalmaður,
Viktor Ingi Jónsson, aðalmaður. 

Starfsmenn

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri,
Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. 

Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Oddviti setti fund. Óskaði oddviti eftir að taka á dagskrá sem 1. dagskrárlið 1213. fund byggðarráðs og skýrsla sveitarstjóra verði því 13. dagskrárliður. Samþykkt samhljóða. Gengið var til dagskrár.

1.

Byggðarráð - 1213 - 2404018F

 

Fundur haldinn 13. maí. Fundargerð í 11 liðum. Formaður kynnti.

 

1.1

2311044 - Úthlutun leiguíbúðar að Garðavegi 20, neðri hæð

   
 

1.2

2405000 - Beiðni vegna Höfðabrautar 6 skilti, bílastæði ofl.

   
 

1.3

2405004 - Bændadagar í Víðidalsá og Fitjaá

   
 

1.4

2405011 - Félagsheimilið Hvammstanga vegna leigu 17. júní 2024

   
 

1.5

2405012 - Samkomulag um afnot af fjöldahjálparstöðvum

   
 

1.6

2405002 - Tjón á búnaði slökkviliðs

   
 

1.7

2405014 - Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra, úthlutunarreglur og úthlutun 2024

   
 

1.8

2404126 - Fundargerð 106. fundar stjórnar SSNV frá 10. apríl 2024

   
 

1.9

2404127 - Fundargerð 947. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19. apríl 2024

   
 

1.10

2405009 - Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um lagareldi, 930.mál. Frestur til umsagnar veittur til 13. maí 2024

 

Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og gerir að sinni:

„Sveitarstjórn fagnar því að nú sé sett fram heildstæð löggjöf um lagareldi. Einkum vill sveitarstjórn fagna því að friðunarsvæði til verndar villtum laxi eru færð í lög (7. gr.). Markmið frumvarpsins sem hér er lagt fram er að skapa skilyrði til sjálfbærrar uppbyggingar lagareldis og efla þannig verðmætasköpun, atvinnulíf og byggð í landinu, stuðla að ábyrgu lagareldi og tryggja verndun villtra nytjastofna. Markmiðið í sjálfu sér er góðra gjalda vert. Hins vegar er það mat sveitarstjórnar að lengra þurfi að ganga en gert er í frumvarpinu til að tryggja að markmið þess nái fram að ganga, einkum til verndunar villtra nytjastofna. Vill sveitarstjórn gera eftirfarandi athugasemdir:

Ótímabundið rekstrarleyfi
Sveitarstjórn gerir alvarlegar athugasemdir við að rekstrarleyfi verði ótímabundin líkt og fram kemur í 33. gr. Eðlilegt er að leyfi sem þessi séu gefin út til ákveðins árafjölda í senn. Við endurnýjun leyfis þurfi lagareldisfyrirtæki að fara í gegnum leyfisveitingaferlið að nýju sem gefur tækifæri til grandskoðunar á starfseminni sem að mati sveitarstjórnar er nauðsynlegt til að auka líkur á að markmið frumvarpsins náist. Þó að í frumvarpinu séu settar fram heimildir til afturköllunar leyfa þá er slík aðgerð afar íþyngjandi, tímafrek og krefst mikils eftirlits. Vandséð er að núverandi eftirlitskerfi hefði burði til slíkra aðgerða.

Kostnaður vegna leitar og veiða á strokulaxi
Ítarlega er fjallað um aðgerðir til að koma í veg fyrir og bregðast við stroki úr sjókvíum enda ljóst að ómögulegt er að koma í veg fyrir slysasleppingar. Í 45. gr. er fjallað um leit og veiði í veiðiám eða vötnum við strok. Þar kemur fram að allan kostnað Matvælastofnunar og annarra stjórnvalda vegna nauðsynlegra aðgerða skuli rekstrarleyfishafi greiða. Sveitarstjórn leggur áherslu á að í þessa grein verði bætt við að rekstrarleyfishafi skuli jafnframt greiða veiðifélögum/veiðiréttarhöfum þann kostnað sem til fellur við leit/veiðar á strokulaxi. Í þeirri stórfelldu slysasleppingu sem upp kom haustið 2023 reyndist sá kostnaður umtalsverður.

Kynþroska lax
Í XI. kafla laganna er fjallað um kynþroska eldislax og takmarkanir ræktunar hans og aðgerðir til að seinka kynþroska. Í ljósi þeirrar slysasleppingar sem átti sér stað sl. haust og leiddi til umtalsverðrar göngu kynþroska eldislaxs í verðmætar laxveiðiár vill sveitarstjórn leggja ríka áherslu á að sett verði ákvæði í frumvarpið þess efnis að innan 10 ára verði óheimilt með öllu að rækta frjóan lax. Með því má minnka til muna þá áhættu sem af eldinu stafar gagnvart villta laxastofninum.

Á 371. fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra sem haldinn var þann 14. september 2023 var svohljóðandi bókað í kjölfar stórfelldrar slysasleppingar í Patreksfirði:

„Sveitarstjórn Húnaþings vestra lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin í húnvetnskum laxveiðiám þar sem veiðst hafa allmargir eldisfiskar á undanförnum dögum og vikum. Í fyrsta lagi veldur þessi staða áhyggjum hvað varðar erfðablöndun við villta laxveiðistofninn eins og margoft hefur verið ítrekað á síðustu árum. Í öðru lagi er áhætta vegna smitsjúkdóma alltaf fyrir hendi og ef slíkir sjúkdómar breiðast út í stofn viðkomandi ár getur það gert út af við ána á stuttum tíma. Í þriðja og síðasta lagi hefur þessi alvarlega staða mikil áhrif á ímynd og gæði þeirra villtu laxveiðiáa sem fyrir þessu verða. Allir þessir þættir geta valdið miklum búsifjum með tilheyrandi tekjufalli landeigenda og samfélags. Sveitarstjórn Húnaþings vestra skorar á matvælaráðherra að beita þeim valdheimildum sem hann hefur í gegnum undirstofnanir sínar til að tryggja að fiskeldisfyrirtækin greiði kostnað vegna mótvægisaðgerða sem veiðifélögin neyðast til að fara í til að verjast strokulaxi úr opnum sjókvíum.“

Ástæða er til að ítreka ofangreinda bókun.

 

1.11

2405026 - Vegglistaverk við Hvammstangahöfn

   

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

2.

Byggðarráð - 1214 - 2405000F

 

Fundur haldinn 22. maí. Fundargerð í 10 liðum. Formaður kynnti.

 

2.1

2301027 - Ósk um stækkun lóðar við Eyri

 

Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

2.2

2405022 - Höfnun umsóknar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða - Deiliskipulag Borðeyri

   
 

2.3

2405023 - Höfnun umsóknar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða - Deiliskipulag Reykjatanga

   
 

2.4

2405030 - Erindi frá verðandi 10. bekk í Grunnskóla Húnaþings vestra

   
 

2.5

2212015 - Lok lóðarleigusamnings vegna Norðurbrautar 30

   
 

2.6

2212016 - Lok lóðarleigusamnings vegna Norðurbrautar 32

   
 

2.7

2405027 - Fundargerð 107. fundar stjórnar SSNV, 7. maí 2024

   
 

2.8

2405024 - Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um lögræðislög (nauðungarvistanir, yfirlögráðendur o.fl.), 925. mál. Umsagnarfrestur til 27. maí nk.

   
 

2.9

2405034 - Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir), 1114. mál. Umsagnarfrestur til 31. maí nk.

   
 

2.10

2405039 - Mál í samráðsgátt stjórnvalda, landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu, mál nr. S-982024, umsagnarfrestur til 4. júní 2024

   

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

3.

Byggðarráð - 1215 - 2405002F

 

Fundur haldinn 3. júní. Fundargerð í 9 liðum. Formaður kynnti.

 

3.1

2405057 - Framlenging á samningi um framleiðslu skólamáltíða

   
 

3.2

2402060 - Starfshópur um dreifnám

   
 

3.3

2405053 - Beiðni um leyfi fyrir litahlaupi í tengslum við 17. júní hátíðarhöld

   
 

3.4

2405056 - Beiðni um endurnýjun á knattspyrnumörkum á Kirkjuhvammsvelli

   
 

3.5

2405059 - Umsókn um námsstyrk

 

Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

3.6

2405061 - Ályktun Félags eldri borgara í Húnaþingi vestra vegna skertrar þjónustu á hjúkrunardeild HVE á Hvammstanga

   
 

3.7

2405058 - Fundargerð 108. fundar stjórnar SSNV, 23. maí 2024

   
 

3.8

2405044 - Fundargerðir 462. og 463. funda stjórnar Hafnasambands Íslands frá 22. mars og 7. maí sl.

   
 

3.9

2405043 - Beiðni um umsögn um tillögu til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030, 1036. mál. Umsagnarfrestur til 5. júní nk.

   

Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

4.

Skipulags- og umhverfisráð - 368 - 2405004F

 

Fundur haldinn 6. júní. Fundargerð í 10 liðum. Formaður kynnti.

 

4.1

2405001 - Eyri, umsókn um stöðuleyfi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.2

2405010 - Efri-Fitjar, umsókn um byggingarheimild

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.3

2405048 - Illugastaðir, beiðni um friðlýsingu æðarvarps.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.4

2405062 - Skrúðvangur, umsókn um stöðuleyfi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.5

2405063 - Búland 4, umsókn um stöðuleyfi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.6

2406001 - Lækjargata 2, fyrirspurn um breytingu á aðalskipulagi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.7

2305051 - Bakkatún 6, umsókn um stöðuleyfi.

 

Unnur Valborg Hilmarsdóttir vék af fundi kl. 15:35.
Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir kom aftur til fundar kl. 15:36.

 

4.8

2406007 - Búland, breyting á deiliskipulagi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.9

2406008 - Austan Norðurbrautar, breyting á deiliskipulagi.

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

 

4.10

2403007 - Höfðabraut 27 ósk um breytingu á aðalskipulagi 2014-2026 á notkun lóðar

 

Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.

Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

5.

Fræðsluráð - 246 - 2405003F

 

Fundur haldinn 30. maí. Fundargerð í 7 liðum. Formaður kynnti.

 

5.1

2310070 - Sameiginleg forvarnaáætlun á Norðurlandi vestra

   
 

5.2

2310069 - Fræðslustjóri að láni

   
 

5.3

2405032 - Viðmið leikskólans Ásgarðs vegna námsleyfa.

   
 

5.4

2402050 - Skóladagatal grunnskóla og tónlistarskóla 2024-2025

   
 

5.5

2402025 - Umsókn í Sprotasjóð febrúar 2024

   
 

5.6

2401004 - Helstu verkefni Fjölskyldusviðs frá síðasta fundi 2024

   
 

5.7

2310067 - Fundargerðir farsældarteymis

   

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

6.

Félagsmálaráð - 255 - 2405001F

 

Fundur haldinn 29. maí. Fundargerð í 1 lið. Oddviti kynnti.

 

6.1

2405050 - Heimsókn félagsmálaráðs í Nestún

   

Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

7.

Landbúnaðarráð - 210 - 2404016F

 

Fundur haldinn 29. maí. Fundargerð í 3 liðum. Formaður kynnti.

 

7.1

2405045 - Beiðni um leyfi til tínslu fjallagrasa 2024

 

Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.2

2405054 - Úthlutun fjármagns til viðhalds heiðagirðinga

 

Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

7.3

2405039 - Mál í samráðsgátt stjórnvalda, Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu, mál nr. S-982024, umsagnarfrestur til 4. júní 2024

 

Sveitarstjórn tekur undir bókun landbúnaðarráðs sem gerði umsögn Félags sauðfjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu að sinni:
„Í drögum að landsáætlun um útrýmingu riðu (hér eftir kölluð LÁ) vekja athygli þær misjöfnu áherslur sem eru lagðar á arfgerðir í áætlunni. Eins og staðan er í þessari áætlun er einungis ARR arfgerðin skilgreind sem verndandi (V) þó að ritrýndar rannsóknir frá Evrópu sýni fram á að hið minnsta er vernd arfgerðarinnar T137 mikil, ásamt því að arfgerðirnar H154 (AHQ) og C151 lofa virkilega góðu í prófunum (MV). Erfðafjölbreytileiki skiptir máli og það er full ástæða til að líta til þess þáttar hvað varðar LÁ, sem og þess hve arfgerðirnar sem eru skilgreindar sem mögulega verndandi (MV) eru mun útbreiddari í íslensku fé en ARR. Þegar litið er til þess tímamarkmiðs sem áætlunin ber með sér, semsagt að útrýma riðu á tiltölulega fáum árum sem er vissulega metnaðarfullt og nauðsynlegt markmið, er nauðsynlegt að okkar mati að líta ekki einungis til ARR arfgerðarinnar heldur MV arfgerða líka. Þó að þær séu mögulega ekki eins verndandi og ARR (sem er reyndar hvorki sannað né afsannað enn) hljóta þær alltaf að vera betri kostur fyrir bændur en þær arfgerðir sem hafa verið staðnar að því hingað til að taka smit framar öðrum arfgerðum, arfgerðirnar VRQ og ARQ. Þar með teljum við að það mætti gera MV arfgerðum hærra undir höfði í þessari áætlun. Þó að þær séu ekki skilgreindar innan Evrópusambandsins sem verndandi er það þó þekkt og viðurkennt að þær bera í sér mótstöðu gegn riðu og ættu að fá meiri vigt í þessari áætlun sem slíkar, einmitt til að útrýming þessa hatramma sjúkdóms gangi hraðar fyrir sig. Þar má aftur sérstaklega nefna arfgerðina T137, sem hefur nú þegar verið viðurkennd sem verndandi í hluta Evrópu og er nú þegar til staðar á þónokkrum bæjum á Norðurlandi. Hvað varðar söluleyfi gripa með V/MV arfgerðir þá verður það að teljast sérstakt að skilyrði sauðfjárbúa vegna sölu á líflömbum hafi verið þrengd á milli ára. Árin 2022-2023 var leyfilegt að selja ARR/x og T137/x en árið 2024 virðist vera sem skilyrði hafi verið þrengd niður í arfhreina gripi. Það teljum við aftur ekki fyllilega samræmast LÁ, sem miðar að því að útrýma riðu eins hratt og framast er unnt, þar sem að ef arfblendnir gripir væru leyfðir til sölu þó ekki væri nema innan hólfa, væri mjög eðlilegt að áætla að það myndi flýta fyrir innleiðingu V/MV gripa. Í þessu tilliti má jafnframt líta til mismunandi skilgreiningar á svokölluðum áhættubæjum og öðrum bæjum innan varnarhólfs. Innan Evrópusambandsins er ekki litið til svæða heldur miklu heldur hjarða. Þar með eru sömu kvaðir á bændur, sama hvort þeir eru innan 10 km frá viðkomandi riðubúi eða 30 km. Eðlilegt þætti okkur þar með að flokkuninni „áhættubæir“ væri hleypt út úr áætluninni og í stað þess yrðu allir bæir innan sama hólfs flokkaðir sem „aðrir bæir innan hólfs“, og fengju þannig græna litamerkingu samkvæmt töflu 6. Tjónabætur vegna riðu eru í þessari landsáætlun miðaðar við þrjú ár. Það er vissulega það viðmið sem hefur hingað til verið nýtt en miðað við framsagðar athugasemdir um innleiðingu góðra arfgerða hlýtur það að vera krafa okkar að LÁ sé ekki niðurnjörfuð svona nákvæmlega á þrjú ár heldur sé tekið mið af aðstæðum bæði á hverjum bæ og hverjum tíma. Þá er ekki hægt að láta hjá líða að nefna varnir vegna garnaveiki. Í áætluninni er rætt fjálglega um að það sé hægt, með útrýmingu riðu, að leggja niður sauðfjárveikivarnarlínur á ýmsum stöðum. Hér verður ekki hjá því komist að nefna það að þó að þessi áætlun snúist um útrýmingu riðu má það aldrei verða á kostnað þess að sjúkdómnum garnaveiki verði leyft að leika lausum hala í staðinn. Þess vegna er það nokkuð óeðlileg nálgun að sauðfjárveikivarnarlínum sé skipt niður eftir einum sjúkdómi, enda sá sjúkdómur þannig gerðar að blessunarlega er hægt að rækta hann í burtu á tiltölulega fáum árum, á meðan engin gen varðandi t.d. garnaveiki þekkjast til þessa.“ Til viðbótar við það sem fram kemur í umsögn Félags sauðfjárbænda vill sveitarstjórn benda á að vísindamenn hafa fært fyrir því rök að þær arfgerðir sem í dag eru skilgreindar sem mögulega verndandi, og þá helst T137, séu ekki síður verndandi gegn riðu en ARR. Því sé full ástæða til að stutt verði við ræktun þeirra arfgerða líkt og gert er við ræktun ARR, bæði gagnvart arfgerðagreiningum og sölu líflamba.

Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

8.

Reglur um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja árið 2024 - 2308025

 

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir reglur um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja fyrir árið 2024.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

9.

Gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga - 2308025

 

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir breytta gjaldskrá Félagsheimilisins Hvammstanga fyrir árið 2024.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

10.

Viljayfirlýsing um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu í Húnaþingi vestra - 2406012

 

Lögð fram viljayfirlýsing milli HMS og Húnaþings vestra um fjölgun íbúða og eflingu stafrænnar stjórnsýslu í sveitarfélaginu. Í henni er tilgreindur fyrsti áfangi í fjölgun íbúða með byggingu fjölbýlishúss á lóðinni Norðurbraut 15 á Hvammstanga, bæði með leiguíbúðum og íbúðum til almennrar sölu. Einnig er í viljayfirlýsingunni kveðið á um sameiginlega vinnu aðila að útgáfu stafrænnar húsnæðisáætlunar sem þegar er til staðar, markvissa notkun mannvirkjaskrár HMS og skráningu leigusamninga í húsnæðisgrunn HMS.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir viljayfirlýsingu milli HMS og Húnaþings vestra um fjölgun íbúða á Hvammstanga og eflingu stafrænnar stjórnsýslu í sveitarfélaginu og felur sveitarstjóra undiritun hennar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

11.

Breytingar á skipuriti - 2406013

 

Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra með tillögu að breytingum á skipuriti sveitarfélagsins. Breytingin felur í sér aukinn skýrleika í framsetningu málaflokka sviða sveitarfélagsins. Einnig eru lagðar til breytingar á starfi rekstrarstjóra en núverandi rekstrarstjóri, Björn Bjarnason hefur sagt upp störfum.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir breytingar á skipuriti Húnaþings vestra með áorðnum breytingum.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn samþykkir breytingu á skipan starfa á umhverfissviði í þá veru að starf rekstrarstjóra verður lagt niður og þess í stað ráðið í starf sviðsstjóra yfir sviðinu. Sveitarstjóra er falið að auglýsa starfið í samvinnu við ráðningarstofu í samræmi við þá starfslýsingu sem lögð var fram á fundinum og hafa umsjón með ráðningunni. Sveitarstjórn þakkar jafnframt Birni Bjarnasyni störf sín í þágu sveitarfélagsins og óskar honum alls hins besta í komandi verkefnum.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

12.

Kosningar í byggðarráð og sumarleyfi sveitarstjórnar - 2403032

 

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Byggðarráð til eins árs, aðalmenn:
Magnús Magnússon formaður
Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
Magnús Vignir Eðvaldsson
Byggðarráð til eins árs, varamenn:
Sigríður Ólafsdóttir
Þorleifur Karl Eggertsson
Viktor Ingi Jónsson.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Í samræmi við 5. mgr. 8. gr. samþykktar um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024 samþykkir sveitarstjórn Húnaþings vestra að fella niður reglulegan fund sveitarstjórnar í júlí og ágúst vegna sumarleyfis. Á meðan á sumarleyfi sveitarstjórnar stendur fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella, sjá nánar 5. mgr. 32. gr. sömu samþykktar. Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar verður haldinn fimmtudaginn 12. september nk.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

 

   

13.

Skýrsla sveitarstjóra - 2311018

 

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.

 

   

 

Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 16:30.

Var efnið á síðunni hjálplegt?