14.-17. desember
Viðburðir
Félagsheimilinu Hvammstanga
Ævintýralegur ærslaleikur hjá dýrunum við árbakkann. Greifing, Rotti og Moldi þurfa að hafa sig alla við að halda Todda á bremsunni þegar hans nýjasta æði yfirtekur hann.
Leikflokkur Húnaþings vestra kynnir:
Þytur í laufi
ævintýri við árbakkann
ævintýri við árbakkann
eftir Kenneth Grahame.
Í leikstjórn og leikgerð Gretu Clough og þýðingu Ingunnar Snædal.
Í leikstjórn og leikgerð Gretu Clough og þýðingu Ingunnar Snædal.
Hinn vitri og sérvitri Greifingi, vatnselskandi Rotti og hinn feimni og innhverfi Moldi þurfa að hafa sig alla við að halda í bremsuna á kærulausa og auðuga Todda þegar hans nýjasta æði heltekur hann og veldur miklum usla í sveitinni kringum ánna.
Þetta er fyndið, ljúft og skemmtilegt leikrit fyrir alla fjölskylduna. Með heillandi og duttlungafullri frásögn sinni fangar "The Wind in the Willows" kjarna ensku sveitarinnar og leggur áherslu á mikilvægi vináttu, tryggðar og mjög fallegrar tengingar við náttúruna og gleði sveitalífsins.
Frábært leikrit fyrir alla fjölskylduna og ein sú huggulegasta samverustund í aðdraganda jólahátíðarinnar.
Sýnt verður í Félagsheimilinu á Hvammstanga dagana 14., 15., 16. og 17. desember 2023. Sýningartímar verða sem hér segir:
14., 15. og 16. desember kl. 19:30
17. desember kl. 14:00
14., 15. og 16. desember kl. 19:30
17. desember kl. 14:00
Miðasala á adgangsmidi.is.