.2
2406059
Skipting fjármagns til viðhalds styrkvega
Landbúnaðarráð - 211
Vegagerðin hefur upplýst að fjármagn þeirra til úthlutunar styrkvega í Húnaþingi vestra sé kr. 2.000.000 árið 2024. Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að kalla eftir rökstuðningi frá Vegagerðinni á framlaginu til Húnaþings vestra, sem verður að teljast óeðlilega lágt m.v. umfang styrkvega í sveitarfélaginu. Sveitarstjóra er jafnframt falið að kalla eftir heildarlista úthlutana framlaga Vegagerðarinnar til sveitarfélaganna úr styrkvegapottinum árið 2024, ásamt rökstuðningi fyrir úthlutun til hvers og eins sveitarfélags.
Framlag til styrkvega samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er kr. 1.800.000. Samtals eru því kr. 3.800.000 til úthlutunar þegar kr. 6.800.000 voru til úthlutunar árið 2022, en þá var framlag ríkisins kr. 5.000.000. Því er hér verið að skerða styrkvegaframlög til sveitarfélagsins annað árið í röð.
Eftirfarandi tillaga um skiptingu fjármagnsins var samþykkt samhljóða:
a) Til afréttavega á Víðidalstunguheiði kr. 1.600.000.
b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.200.000.
c) Til afréttavega í Hrútafirði austur kr. 700.000.
d) Til vegar ofan Hvammstanga upp á Vatnsnesfjall kr. 300.000.
Fjallskilastjórnir sjá um framkvæmdir við styrkvegi á sínum svæðum, að veginum yfir Brandagilshálsi undanskildum sem verður á ábyrgð sveitarstjóra. Landbúnaðarráð samþykkir samræmt gjald vegna vinnu við styrkvegina í sveitarfélaginu, þar sem gjald fyrir dráttarvél með vagni og manni verði að hámarki kr. 17.800 pr.klst. með vsk. Vinnu við styrkvegina skal vera lokið fyrir fyrstu göngur og lokafrestur til að skila inn reikningum vegna vinnunnar er 15. október nk. Fjallskilastjórnir skulu jafnframt skila greinargerð um framkvæmdir ársins til sveitarstjóra.
Bókun fundar
Byggðarráð tekur undir athugasemdir landbúnaðarráðs vegna stórfelldrar skerðingar á framlagi Vegagerðarinnar frá árinu 2022 vegna úthlutunar fjármagns til styrkvega í sveitarfélaginu.
Afgreiðsla landbúnaðarráðs vegna úthlutunar fjármagns til styrkvega 2024 borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.