Byggðarráð

1219. fundur 08. júlí 2024 kl. 14:00 - 14:45 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá

1.Landbúnaðarráð - 211

Málsnúmer 2406005FVakta málsnúmer

Fundur haldinn 3. júlí. Fundargerð í 2 liðum. Formaður byggðarráðs kynnti.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.
  • 1.1 2406073 Fjallskiladeild Hrútfirðinga að austan - beiðni um rökstuðning vegna fjármagns til viðhalds heiðagirðinga
    Landbúnaðarráð - 211 Lagt fram erindi frá Fjallskiladeild Hrútfirðinga austan þar sem óskað er rökstuðnings á skiptingu fjármagns til viðhalds heiðargirðinga á 210. fundi landbúnaðarráðs. Óskar fjallskilastjórnin eftir rökstuðningi á því af hverju fjármagn til viðhalds heiðagirðinga í Hrútafirði sé ekki hærra miðað við lengd girðinga deildarinnar.

    Landbúnaðarráð þakkar fyrir erindið, en úthlutun ársins 2024 hefur þegar verið samþykkt af sveitarstjórn. Þegar litið er til úthlutunar fjármagns til viðhalds girðinga er litið annars vegar til lengda girðinga og hins vegar til áætlaðrar viðhaldsþarfar út frá fyrirséðu ástandi girðinga, sem er metið út frá rökstuðningi sem fylgir styrkbeiðnum ásamt því að reynt er eftir fremsta megni að taka mið af veðurfræðilegum þáttum og snjóalögum næstliðins vetrar. Því er það landbúnaðarráði nauðsynlegt að fá sem nákvæmastar greinargerðir og lýsingar á fyrirhuguðum girðingaframkvæmdum með styrkbeiðnum hvers árs.

    Landbúnaðarráð beinir því til fjallskilastjórna að hafa styrkbeiðnir sínar fyrir árið 2025 ítarlegar svo auðveldara sé að lesa úr þeim nákvæma stöðu á viðhaldsþörf heiðagirðinga fjallskiladeildanna.
  • 1.2 2406059 Skipting fjármagns til viðhalds styrkvega
    Landbúnaðarráð - 211 Vegagerðin hefur upplýst að fjármagn þeirra til úthlutunar styrkvega í Húnaþingi vestra sé kr. 2.000.000 árið 2024. Landbúnaðarráð felur sveitarstjóra að kalla eftir rökstuðningi frá Vegagerðinni á framlaginu til Húnaþings vestra, sem verður að teljast óeðlilega lágt m.v. umfang styrkvega í sveitarfélaginu. Sveitarstjóra er jafnframt falið að kalla eftir heildarlista úthlutana framlaga Vegagerðarinnar til sveitarfélaganna úr styrkvegapottinum árið 2024, ásamt rökstuðningi fyrir úthlutun til hvers og eins sveitarfélags.
    Framlag til styrkvega samkvæmt fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er kr. 1.800.000. Samtals eru því kr. 3.800.000 til úthlutunar þegar kr. 6.800.000 voru til úthlutunar árið 2022, en þá var framlag ríkisins kr. 5.000.000. Því er hér verið að skerða styrkvegaframlög til sveitarfélagsins annað árið í röð.
    Eftirfarandi tillaga um skiptingu fjármagnsins var samþykkt samhljóða:
    a) Til afréttavega á Víðidalstunguheiði kr. 1.600.000.
    b) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.200.000.
    c) Til afréttavega í Hrútafirði austur kr. 700.000.
    d) Til vegar ofan Hvammstanga upp á Vatnsnesfjall kr. 300.000.
    Fjallskilastjórnir sjá um framkvæmdir við styrkvegi á sínum svæðum, að veginum yfir Brandagilshálsi undanskildum sem verður á ábyrgð sveitarstjóra. Landbúnaðarráð samþykkir samræmt gjald vegna vinnu við styrkvegina í sveitarfélaginu, þar sem gjald fyrir dráttarvél með vagni og manni verði að hámarki kr. 17.800 pr.klst. með vsk. Vinnu við styrkvegina skal vera lokið fyrir fyrstu göngur og lokafrestur til að skila inn reikningum vegna vinnunnar er 15. október nk. Fjallskilastjórnir skulu jafnframt skila greinargerð um framkvæmdir ársins til sveitarstjóra.
    Bókun fundar Byggðarráð tekur undir athugasemdir landbúnaðarráðs vegna stórfelldrar skerðingar á framlagi Vegagerðarinnar frá árinu 2022 vegna úthlutunar fjármagns til styrkvega í sveitarfélaginu.

    Afgreiðsla landbúnaðarráðs vegna úthlutunar fjármagns til styrkvega 2024 borin undir atkvæði og samþykkt með 3 atkvæðum.

2.Gjaldfrjálsar skólamáltíðir

Málsnúmer 2407010Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna gjaldfrjálsra skólamáltíða ásamt áætluðum framlögum ríkisins í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Í minnisblaði Sambandsins er rakið að við nýafstaðin þinglok Alþingis hafi verið samþykkt frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga er varðar gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum landsins. Lagabreytinguna má rekja til sameiginlegrar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem gerð var þann 7. mars sl. til að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði. Með lagabreytingunni bætist við árlegt framlag til Jöfnunarsjóðs árin 2024-2027 til úthlutunar fyrir þau sveitarfélög sem bjóða öllum nemendum upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum.
Í drögum að skiptingu framlaga Jöfnunarsjóðsins milli sveitarfélaganna, er áætlað framlag til Húnaþings vestra kr. 4.839.520 frá ágúst-desember 2024.
Byggðarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að greina hvort að framlagið standi undir 75% af því sem foreldrar hefðu annars greitt á komandi haustönn.

3.Breyting á skipan almannavarnarnefndar

Málsnúmer 2406077Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Birgi Jónassyni lögreglustjóra Norðurlands vestra fyrir hönd almannavarnarnefndar í Húnavatnssýslum, en í erindinu er lagt til að almannavarnarnefnd í Húnavatnssýslum verði skipuð með eftirfarandi hætti:
- Sveitarstjórar
- Lögreglustjóri og yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra.
- Slökkviliðsstjórar í Húnabyggð, Húnaþingi vestra og Skagaströnd.
- Byggingar- og/eða skipulagsfulltrúar í Húnabyggð og Húnaþingi vestra.
- Læknir frá Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga.

Nefndin verði skipuð 10-11 fulltrúum auk varamanna.

Byggðarráð samþykkir breytta tilnefningu almannavarnarnefndar í Húnavatnssýslum og felur sveitarstjóra að undirbúa nauðsynlegar breytingar á samþykkt um stjórn Húnaþings vestra nr. 15/2024 vegna breytingarinnar, með fyrirvara um samþykki annarra sveitarstjórna í Húnavatnssýslum.

4.Fundargerð 949. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13. júní 2024

Málsnúmer 2406075Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

5.Fundargerð 950. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 21. júní 2024

Málsnúmer 2406076Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:45.

Var efnið á síðunni hjálplegt?