Landbúnaðarráð - 216

Málsnúmer 2501002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 388. fundur - 13.02.2025

Fundargerð 216. fundar landbúnaðarráðs frá 12. febrúar sl. lögð fram til afgreiðslu á 388. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sigríður Ólafsdóttir formaður landbúnaðarráðs kynnti fundargerð.
  • Landbúnaðarráð - 216 Til umræðu voru fjallskil í sveitarfélaginu, fyrirkomulag og framkvæmd þeirra, vegaframkvæmdir og girðingarvinna sl. árs, skipting fjármuna o.fl. Einnig voru formenn fjallskiladeilda beðnir um að skila yfirliti yfir framkvæmdir nýliðs árs ásamt yfirliti yfir nauðsynlegar framkvæmdir á komandi sumri í tengslum við umsókn um styrki Vegagerðarinnar til styrkvegaframkvæmda.

    Landbúnaðarráð þakkar formönnum fjallskiladeilda komuna á fundinn.
  • Landbúnaðarráð - 216 Landbúnaðarráð leggur til að hirðing rúlluplasts fari fram í byrjun apríl og lok nóvember.
  • Landbúnaðarráð - 216 Landbúnaðarráð leggur til að brotajárnsgámar verði staðsettir í Víðidal og Vesturhópi í sumar. Sveitarstjóra er falið að vinna að því finna heppilegar staðsetningar í samráði við formann.
Var efnið á síðunni hjálplegt?