Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa haldinn 17. Nóvember kl 18:00 í Kirkjuhvammi
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 17. nóvember. Í ár verður kastljósi dagsins beint að hættunni sem getur skapast á að sofna eða dotta undir stýri vegna þreytu ökumanna. Rannsóknir Rannsóknarnefndar samgönguslysa hafa sýnt að svefn og þreyta eru meðal helstu orsaka banaslysa í umferðinni.
Minningarathafnir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni og þar verður fórnarlamba umferðaslysa minnst. Viðbragðsaðilar á Hvammstanga munu koma saman í Kirkjuhvammi kl 18.00 þar sem kveikt verður á kertum fyrir þá sem látist hafa á árinu í umferðarslysum og fórnarlamba umferðarslysa minnst með einnar mínútu þögn.
Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum.
Fólki er velkomið að taka þátt í þessari stuttu athöfn með viðbragsaðilum.