Byggðarráð

1223. fundur 12. september 2024 kl. 08:30 - 11:01 í Ráðhúsinu
Nefndarmenn
  • Magnús Magnússon formaður
  • Elín Lilja Gunnarsdóttir varaformaður
  • Magnús Vignir Eðvaldsson aðalmaður
  • Viktor Ingi Jónsson aðalmaður
  • Þorleifur Karl Eggertsson aðalmaður
  • Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri
  • Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Elín Jóna Rósinberg sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Ingimar Sigurðsson boðaði forföll.

1.Fjárhagsáætlun 2025 - gjaldskrár

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Farið var yfir helstu forsendur gjaldskráa fyrir árið 2025.

2.Fjárhagsáætlun 2025 - frístundakort

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga:
"Fjárhæð frístundakorts verði kr. 25.000 árið 2025 fyrir börn frá fæðingu að 18. aldursári."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.

3.Fjárhagsáætlun 2025 - starfsáætlanir forstöðumanna

Málsnúmer 2408023Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar starfsáætlanir forstöðumanna fyrir árið 2025.

Byggðarráð þakkar forstöðumönnum fyrir greinargóðar áætlanir sem sýna glöggt faglegan metnað fyrir stofnunum þeirra.

Fundi slitið - kl. 11:01.

Var efnið á síðunni hjálplegt?