Beiðni um leyfi til tínslu fjallagrasa 2024

Málsnúmer 2405045

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarráð - 210. fundur - 29.05.2024

Stella Dröfn Bjarnadóttir boðaði forföll og ekki náðist í varamann hennar.
Lögð fram beiðni frá Liljönu Milenkoska fyrir hönd Nadezhda Milenkoska og Vasil Shumkoski til fjallagrasatínslu á Arnarvatnsheiði þegar vegir opna og út október. Beiðninni fylgir kort af áætluðu tínslusvæði ásamt því svæði sem tínt var á árið 2023. Einnig er tilgreint magn sem tínt var árið 2023 í samræmi við Reglur um fjallagrasanytjar í löndum Húnaþings vestra. Landbúnaðarráð samþykkir beiðnina en leggur áherslu á að tínsla hefjist ekki fyrr en að vegir hafi opnað og jafnframt að þeir sem tínsluna annast gangi vel um svæðið.
Var efnið á síðunni hjálplegt?