Forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar Norðurlands 2025

Málsnúmer 2406028

Vakta málsnúmer

Byggðarráð - 1217. fundur - 24.06.2024

Lögð fram beiðni Markaðsstofu Norðurlands um skilgreiningu forgangsverkefna í Áfangastaðaáætlun Norðurlands fyrir árið 2025. Undanfarin ár hafa sömu verkefni verið skilgreind sem forgangsverkefni. Þau eru:
Vatnsnes.
Borðeyri.
Reykjatangi.
Kolugljúfur.
Stígakerfi við Hvammstanga og víðar.

Sveitarstjóra er falið að auglýsa eftir tillögum íbúa að forgangsverkefnum og gera tillögu að áherslum sveitarfélagsins í áfangastaðaáætlun byggt á þeim og leggja fyrir byggðarráð.

Byggðarráð - 1222. fundur - 09.09.2024

Auglýst var eftir tillögum að forgangsverkefnum með auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins. Engar tillögur bárust. Byggðarráð samþykkir óbreytt forgangsverkefni frá fyrra ári. Þau eru Vatnsnes, Borðeyri, Reykir í Hrútafirði, Kolugljúfur og stígakerfi milli Laugarbakka, Hvammstanga og Kirkjuhvamms.
Var efnið á síðunni hjálplegt?