Eldvarnaátakið – verndum líf, heilsu og eignir

Eldvarnaátakið – verndum líf, heilsu og eignir

Hér á landi farast að meðaltali um tvær manneskjur í eldsvoðum á ári hverju. Miklu fleiri verða fyrir líkamlegu og andlegu heilsutjóni af völdum eldsvoða ár hvert. Hér glatast auk þess að meðaltali á hverju ári um tveir milljarðar króna í eldsvoðum.

Það er því ekki að ástæðulausu sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir Eldvarnaátakinu í lok nóvember ár hvert. Átakið er mikilvæg viðbót við forvarnastarf sem unnið er á vegum Eldvarnabandalagsins, slökkviliðanna, slysavarnadeilda og fleiri árið um kring. Eldvarnaátakið beinist að börnum í þriðja bekk grunnskólanna og fjölskyldum þeirra. Við slökkviliðsmenn ræðum þá við nemendur í 3. bekk grunnskólanna og fræðum þá um eldvarnir.

 

Reykskynjarar bjarga

 

Komi eldur upp á heimili hefur heimilisfólk oft mjög skamman tíma til að forða sér út. Stundum líða bara nokkrar mínútur uns íbúð fyllist af reyk og verður jafnvel alelda. Því er algjört lykilatriði að á heimilum séu nægjanlega margir virkir reykskynjarar til að vara fólk við hættunni, vekja það af svefni og gefa svigrúm til að bjarga lífi og limum.

Best er að hafa reykskynjara í öllum rýmum. Gott er að hafa reykskynjara samtengda, að minnsta kosti á stærri heimilum. Prófa á reykskynjara að minnsta kosti árlega og skipta þarf árlega um rafhlöðu í reykskynjurum með 9 v rafhlöðu. Endurnýja skal reykskynjara á tíu ára fresti.

 

Tvær flóttaleiðir eða fleiri

 

Mikilvægt er að allir hafi tvær eða fleiri flóttaleiðir úr brennandi íbúð. Skortur á flóttaleiðum getur orðið fólki að fjörtjóni eins og nýleg dæmi sýna. Í sumum tilvikum er unnt að fjölga flóttaleiðum með því að koma fyrir neyðarstiga (fellistiga) af efri hæðum.

Við hvetjum fjölskyldur til að gera einfalda flóttaáætlun og ákveða stað til að hittast á utandyra ef rýma þarf heimilið. Ef eldur er í stigagangi fjölbýlishúss á fólk að halda sig inni í íbúðinni og láta vita af sér við glugga eða á svölum.

 

Slökkvibúnaður

 

Margir hafa komið í veg fyrir stórtjón með notkun slökkvibúnaðar. Eldvarnateppi á að vera sýnilegt á vegg í eldhúsi en þó ekki of nærri eldavél. Reynið ekki að slökkva eld í olíu með vatni. Það gerir illt verra. Notið eldvarnateppið.

Slökkvitæki á að vera sýnilegt við helstu flóttaleið og hafa á slökkvitæki við alla útganga í fjölbýli. Fylgja þarf leiðbeiningum framleiðanda um viðhald tækjanna. Hringja ber tafarlaust í 112 ef eldur kemur upp og mikilvægt er að leggja sjálfan sig eða aðra aldrei í hættu við slökkvistarf.

Með aðgát í daglegri umgengni og nauðsynlegum eldvarnabúnaði getum við dregið verulega úr líkum á að eldur komi upp og valdi tjóni á lífi og eignum. Við slökkviliðsmenn viljum því hvetja fólk eindregið til að huga að eldvörnum heimilisins. Það er ekki síst mikilvægt nú í aðdraganda hátíðanna þegar eldhætta á heimilum eykst.

 

Jóhannes Kári Bragason
Slökkviliðsstjóri

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?