Fjallskilaseðill Vatnsnesinga 2015

Fjallskilaseðill

Vatnsnesinga haustið 2015

 

Göngur  fari fram laugardaginn 12. september 2015.

 

Þorgrímsstaðadal smali 5 menn undir stjórn Lofts Guðjónssonar á Ásbjarnarstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 3 menn, Þorbjörg og Óskar Þorgrímsstöðum 2 menn.  Smalað verður norður og réttað á Ásbjarnarstöðum.

Útfjallið smali 13 menn undir stjórn Benedikts á Bergsstöðum.

Í þær göngur leggi til;

Benedikt Bergsstöðum 5 menn, Þormóður Sauðadalsá 3 menn,

Ellert Sauðá 4 menn, Æðarvarp Illugastöðum 1 mann.

Miðpart fjallsins smali 17 menn undir stjórn Herdísar í Grafarkoti.

Í þær göngur leggi til;

Ellert Sauðá 1 mann, Þormóður Sauðadalsá 3 menn,

Ágúst Gröf  2 menn,Kolbrún Stella Lindarbergi 2 menn, Jón Hilmar Grænahvammi 1 mann, Guðmundur Helguhvammi 1  mann, Magnús Helguhvammi 3 menn, Pálmi Syðri-Völlum 1 mann,

Indriði Grafarkoti 3 menn.

Fremsta hluta fjallsins smali 7 menn undir stjórn Halldórs í Vatnshól.

Í þær göngur leggi til;

         Halldór Vatnshól 4 menn, Rúnar Vatnshorni 1 mann,

Sæþór Múla 1 mann, Indriði Grafarkoti 1 mann

Smalað verður austur og réttað í Vatnshól.

 

Til að hirða fé í Þverárrétt leggi til;

Loftur Ásbjarnarstöðum 1 mann. Fé sem kemur fyrir í Þverárrétt verður skilið eftir í Helguhvammi og Hamarsrétt.

 

Til að vakta safnið meðan réttað er í Hamarsrétt, leggi til;

Loftur Ásbjarnastöðum 2 menn.

 

Marklýsingarmenn í  Hamarsrétt;

         Ellert Sauðá og Halldór Vatnshól

 

Réttarstjórn í Hamarsrétt; Þormóður Ingi Heimisson, Sauðadalsá.

 

Almenn skyldusmölun verður 10. október.

Ekki er gert ráð fyrir eftirleit, en metið verður seinna í haust hvort þörf er á því.

 

Gangnamat                   kr. 3.500,-

Gangna- og réttarstjórn kr. 2.500,-

Vakta safnið                           kr  1.200.-

Marklýsing                    kr. 1.000.-

Þverárrétt                      kr. 4.500,-

 

Fjallskilagjald á kind     kr.     60,-

Fjallskilagjald á hross      kr.   120,-

 

Skyldusmölun á hrossum verður laugardaginn 24. október 2015.

 

 

Hamarsbúð 20. Ágúst 2015

 

Þormóður Ingi Heimisson

Sigurður Magnús Guðmundsson

Auðbjörg Kristín Magnúsdóttir

 

 

                                                

 

Var efnið á síðunni hjálplegt?