Tónleikar Rokkkórsins

Tónleikar Rokkkórsins

Rokkkórinn ætlar að halda þrenna tónleika næstu daga. Fjörið hefst í Lindakirkju laugardaginn 22. mars, Miðgarður í Skagafirði verður svo heimsóttur fimmtudaginn 27. mars og síðustu tónleikarnir fara fram á heimaslóðum í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 29. mars.

Tónleikarnir í Lindakirkju og Miðgarði hefjast kl. 20:00 en kl. 21:00 á Hvammstanga.

Dagskráin mun spanna lög yfir 50 ára tímabil og því um fjölbreytta dagskrá að ræða.

Rokkkórinn er 25 manna kór úr Húnaþingi vestra sem hefur verið starfandi (að undanskildu covid tímabili) síðan 2021. Er þetta í annað skiptið sem kórinn stendur sjálfur fyrir tónleikum en hefur einnig komið fram sem gestaatriði í nokkur skipti. Meðlimir kórsins koma úr öllum áttum, bændur, kennarar, rafvirkjar, smiðir, dýralæknir, svæðisstjóri, fjármálastjóri, prjónakall, sjúkraliði, leikskólakennari, innkaupastjóri og áfram mætti telja. Æfingar fyrir þessa tónleika hafa staðið yfir með hléum síðan haustið 2023 og er mikil tilhlökkun í kórnum með að sýna afrakstur þeirra.

Miðasala fer fram á adgangsmidi.is og er miðaverð 5.000 kr. Einnig verður posi á staðnum.

Var efnið á síðunni hjálplegt?