Viðurkenningarhafar, ásamt sveitastjóra og nefndarmönnum
Umhverfisviðurkenningar fyrir árið 2023 voru veittar þann 5. október við notalega athöfn á Sjávarborg. Viðurkenningarnar hafa verið veittar árlega frá árinu 1999 og hafa í allt rúm 70 eignir eða aðilar fengið viðurkenningu. Misjafnt hefur verið milli ára hversu margar viðurkenningar eru veittar, í ár voru það þrjár viðurkenningar. Hingað til hefur engin lóð/land fengið viðurkenninguna tvisvar, en þó er enn úr nægu að moða og punktaði nefndin hjá sér allnokkrar eignir sem koma sterklega til greina næstu árin, sem sýnir sterkt að íbúum samfélagsins er í heild annt um umhverfið og snyrtimennsku.
Viðtakendum umhverfisviðurkenningar ársins 2023 er óskað til hamingju, en það voru eigendur eftirtalinna eigna:
Lækjarbakki fyrir snyrtilegt umhverfi við fremur nýlegt hús þar sem vel er frá öllu gengið. Bæði hús og garður eru í góðu samspili við umhverfið í kring. Ber eignin eigendum gott vitni um snyrtimennsku og virðingu fyrir umhverfi sínu.
Mánagata 8 fyrir mjög snyrtilega lóð í töluverðum halla, sem ekki ber mikið á frá götu. Íbúðarhúsi er sérstaklega vel við haldið. Ber eignin eigendum gott vitni um snyrtimennsku og virðingu fyrir umhverfi sínu.
Tjarnarkot fyrir snyrtilegt umhverfi við sveitabæ sem er sveitinni til sóma. Hvergi óþarfa dót, girðingum vel við haldið, tún vel hirt og úthagi hóflega beittur. Ber eignin eigendum gott vitni um snyrtimennsku og virðingu fyrir umhverfi sínu.
Var valið í höndum umhverfisnefndar, en sá Unnur Valborg sveitarstjóri um afhendingar viðurkenninganna fyrir hönd sveitarfélagsins.
Umhverfisnefndina skipa Birgir Þór Þorbjörnsson, Borghildur H. Haraldsdóttir og Fríða Marý Halldórsdóttir. Með nefndinni starfaði Ólöf Rún Skúladóttir, verkefnisstjóri umhverfismála, og eru þeim þökkuð vel unnin störf.
Eigendur Lækjarbakka, Magnús Magnússon og Berglind Guðmundsdóttir, ásamt nefndarmönnum
Eigendur Mánagötu 8, Erna Snorradóttir og Marteinn Reimarsson, ásamt nefndarmönnum
Eigendur Tjarnarkots, Davíð Gestsson og Ásta Sóllilja Þorsteinsdóttir, ásamt nefndarmönnum