Undirritun viljayfirlýsingarinnar, Helgi Haukur Helgason, framkvæmdastjóri Bríetar og Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.
Húnaþing vestra og Leigufélagið Bríet hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu leiguíbúða í Húnaþingi vestra. Í yfirlýsingunni lýsa aðilar yfir vilja til samstarfs um uppbyggingu leiguíbúða í sveitarfélaginu auk þess sem Húnaþing vestra leggi íbúðir í þess eigu inn til Bríetar í gegnum svokölluð yfirtökuverkefni. Viljayfirlýsing þessi kemur til viðbótar samkomulagi sem undirritað var á dögunum milli innviðaráðuneytis, Húnaþings vestra og HMS um uppbyggingu allt að 50 íbúða til sölu og leigu á næstu fimm árum.
Þessari íbúðauppbyggingu sem fyrirhuguð er í Húnaþingi vestra er ætlað að mæta þeirri þörf sem kemur fram kemur í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Í henni er reiknuð út þörf fyrir íbúðahúsnæði út frá mannfjöldaspá til næstu 10 ára. Þrjár sviðsmyndir eru settar fram hvað þróun íbúafjölda varðar, lágspá, miðspá og háspá. Miðað við lágspá er gengið út frá því að árið 2033 verði íbúar í sveitarfélaginu 1314 talsins, eða u.þ.b. 70 fleiri en er í dag, miðað við þá sviðsmynd er íbúðaþörfin næstu 10 ár 39 íbúðir. Ef miðað er við miðspá er gert ráð fyrir að íbúar í sveitarfélagin verði 1414 talsins og uppsöfnuð íbúðaþörf á því tímabili 87 íbúðir. Ef gengið er út frá háspá er gert ráð fyrir að íbúar verði 1514 árið 2033 og íbúðaþörfin þá 135 íbúðir.
Fyrsta húsnæðisáætlun Húnaþings vestra var unnin árið 2022. Þá gerði lágspá ráð fyrir 1229 íbúum árið 2024, miðspá gerði ráð fyrir 1270 íbúum en háspá 1290. Íbúar 1. apríl skv. Þjóðskrá voru 1243 sem er á milli lágspár og háspár. Á milli áranna 2019 og 2023 fjölgaði íbúum í Húnaþingi vestra um 4% meðan íbúum í landshlutanum fjölgaði um 1,3% á sama tímabili skv. tölum Hagstofunnar.