Rekstur lítilla fyrirtækja með Jóni Snorra prófessor við Háskólann á Bifröst

Námskeiðslýsing:

Á þessu námskeiði er farið yfir grundvallaratriði og hugtök í tengslum við að þróa viðskiptahugmyndir. Farið verður yfir markaðsgreiningu tækifæra og hvernig viðskipta- og markaðsáætlanir eru byggðar upp. Lögð er áhersla á að þátttakendur geri sér grein fyrir mikilvægi þessara þátta í stofnun og rekstri fyrirtækis.
 
Námsmarkmið:
Eftir námskeiðið eiga nemendur að:
• Þekkja að greina tækifæri á markaði
• Geta sett fram einfalda rekstraráætlun
 
Námskeiðið er gjaldfrjálst og fer fram á Teams á eftirfarandi dagsetningum:
Mánudaginn 31. mars frá 17:00-18:30
Fyrirlestur um frumkvöðla og einkenni þeirra + spjall/umræður
Þriðjudaginn 1. apríl frá 17:00-18:30
Fyrirlestur um hvernig hugmynd fer á markað + spjall/umræður
Fimmtudaginn 3. apríl frá 17:00-18:30
Fyrirlestur um gerð áætlana + spjall/umræður
 
Námskeiðið er. gjaldfrjálst en skráningar er þörf: Sendið póst með nafni þátttakenda, símanúmeri og nafni ykkar sveitarfélags á endurmenntun@bifrost.is til að skrá ykkur.
 
Jón Snorri Snorrason er prófessor við Háskólann á Bifröst. Hefur verið forstjóri stórfyrirtækja s.s. Ölgerðin Egill Skallagímsson, Bifreiðar&landbúnaðarvéla (B&L), Öryggismiðstöðvarinnar. Setið í fjölmörgum stjórnum fyrirtækja s.s. Lyfju, Vátryggingafélags Ísland (VÍS), Íslenska lífeyrissjóðsins og Verðbréfaþing Íslands. Verið viðloðandi kennslu við háskóla í 40 ár, Forstöðumaður MBA námsins við Viðskiptafræðideild HÍ og síðar lektor þar og verið deildarforseti Viðskiptadeildar á Bifröst.
Var efnið á síðunni hjálplegt?