Rokkkórinn á Hvammstanga

Þá er komið að því.
 
Rokkkórinn ætlar að halda þrenna tónleika í mars 2025. Fjörið hefst í Lindakirkju Kópavogi 22. mars. Fimmtudaginn 27. mars verður svo haldið norður í Skagafjörð, nánar tiltekið í Menningarhúsinu Miðgarði og að lokum heima í héraði í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardagskvöldið 29. mars.
 
Dagskráin mun spanna lög yfir 50 ára tímabil og því um fjölbreytta dagskrá að ræða.
 
Rokkkórinn er 25 manna kór úr Húnaþingi vestra sem hefur verið starfandi síðan 2021. Er þetta í annað skiptið sem kórinn stendur sjálfur fyrir tónleikum en hefur einnig komið fram sem gestaatriði í nokkur skipti. Meðlimir kórsins koma úr öllum áttum, bændur, kennarar, rafvirkjar, smiðir, dýralæknir, innheimtustjóri, fjármálastjóri, prjónakall, sjúkraliði, leikskólakennari, innkaupastjóri, sjúkraflutningamenn og áfram mætti telja. Æfingar fyrir þessa tónleika hafa staðið yfir með hléum síðan haustið 2023 og er mikil tilhlökkun í kórnum með að sýna afrakstur þeirra.
 
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 en húsið opnar 20:30.
Miðasala fer fram á www.adgangsmidi.is og er miðaverð 5.000 kr.
 
Var efnið á síðunni hjálplegt?