Oddviti setti fund.
1. Fundargerðir byggðarráðs, formaður kynnti.
Fundargerð 965. fundar byggðarráðs frá 30. apríl sl. Fundargerð í 11 liðum.
3. dagskrárliður 1804041. Erindi um fjárstuðning frá Skákfélaginu Hróknum. Samþykkt með 7 atkvæðum.
10. dagskrárliður 1802024. Tillaga um hækkun á húsaleigu í húsnæði í eigu Húnaþings vestra skv. framlögðu skjali. Samþykkt með 7 atkvæðum.
11. dagskráliður 1804050. Erindi frá ungmennaráði. Samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 966. fundar byggðarráðsfrá 14. maí sl. Fundargerð í 12 liðum.
5. dagskrárliður 1805008. Lóðarumsókn Bakkatúni 10 frá Vilhelm Vilhelmssyni og Sólveigu Benjamínsdóttur. Samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Fundargerð skipulags- og umhverfisráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 296. fundar frá 3. maí sl. Fundargerð í 6 liðum.
3. dagskrárliður 1708002 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
4. dagskrárliður 1804015 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
5. dagskrárliður 1802066 Lögð fram eftirfarandi bókun: „Erindið er samþykkt með fyrirvara um staðfestingu skipulagsstofnunar á aðalskipulagsbreytingunni og gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda“.
6. dagskrárliður 1709083 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 297. fundar frá 16. maí sl. Fundargerð í 4 liðum.
1. dagskrárliður 1510031. Lögð fram eftirfarandi bókun: „Deiliskipulag Hvammstangahafnar. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og verður þeim sem gerðu athugasemdir send umsögn sveitarstjórnar sbr. framlagt samantektarskjal skipulagsfulltrúa, dagsett í maí 2018 um innsendar athugasemdir ásamt viðbrögðum við þeim. Gerðar hafa verið lagfæringar á skipulagsgögnum og eru þær lagfæringar tíundaðar í samantektarskjali.“
Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillöguna og felur sveitarstjóra að annast gildistöku hennar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2. dagskrárliður 1712019. Lögð fram eftirfarandi bókun: „Breyting á deiliskipulagi skálasvæðis við Arnarvatn sem samþykkt var 2003. Um er að ræða óverulega breytingu sem sem felur í sér að bætt verður við byggingarreit fyrir allt að 100 fermetra þjónustuhús við núverandi skálasvæði.“ Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagstillöguna og að málsmeðferð sé í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. dagskrárliður 1802082 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
4. dagskrárliður 1802043. Lögð fram eftirfarandi bókun: „Verndarsvæði í byggð – Borðeyri.
Þann 17. ágúst 2016 sótti Húnaþing vestra um styrk úr húsafriðunarsjóði vegna tillögu að verndarsvæði í byggð. Lagt var til að hluti Borðeyrar yrði verndaður vegna menningarsögulegs gildis og ásýndar svo auðveldara verði að vernda sérkenni byggðarkjarnans í komandi skipulagsvinnu. Þann 14. september 2016 úthlutaði Minjastofnun Íslands, Húnaþingi vestra styrk úr húsafriðunarsjóði til að vinna tillögu að verndarsvæði í byggð á Borðeyri. Byrjað var strax á verkefninu og tveir íbúafundir haldnir. Tillagan var auglýst frá 27. mars til og með 8. maí 2018, sbr. 5. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015 og 2. gr. reglugerðar um verndarsvæði í byggð nr. 575/2016. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma.“ Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda tillögu ásamt fylgigögnum til staðfestingar ráðherra hið fyrsta, sbr. 7. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. Fundargerð fræðsluráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 188. fundar frá 18. apríl sl. Fundargerð í 5 liðum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 189. fundar frá 2. maí sl. Fundargerð í 3 liðum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4. Fundargerð félagsmálaráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 189. fundar frá 18. apríl sl. Fundargerð í 4 liðum.
3. dagskrárliður. Reglur um úthlutun félagslegra íbúða og íbúða fyrir aldraða í Húnaþingi vestra. Samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 190. fundar frá 2. maí sl. Fundargerð í 2 liðum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
5. Fundargerð ungmennaráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 50. fundar frá 10. apríl sl.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Ársreikningur sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2017, síðari umræða.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu „ Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagðan ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2017.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Helstu niðurstöður ársreiknings Húnaþings vestra 2017 eru:
- Rekstrarniðurstaða samstæðu A og B hluta er jákvæð um kr. 227,9 milljónir, samanborið við kr. 148,8 milljónir árið 2016.
- Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 217 milljónir, samanborið við kr. 132,4 milljónir árið 2016.
- Breyting á lífeyrisskuldbindingum A og B hluta var kr. 3,9 milljónir, samanborið við kr. 16,5 milljónir árið 2016.
- Handbært fé frá rekstri A og B hluta samstæðu er kr. 286,5 milljónir, samanborið við kr. 154,3 milljónir árið 2016.
- Lántökur A og B hluta samstæðu voru 50 milljónir, samanborið við engar lántökur árið 2016.
- Afborganir langtímalána A og B hluta samstæðu eru kr. 56,2 milljónir, samanborið við kr. 61,9 milljón árið 2016.
- Skuldahlutfall A og B hluta er 52,6% samanborið við 56,2% árið 2016. Miðað er við að þetta hlutfall sé ekki hærra en 150%.
- Langtímaskuldir A og B hluta eru kr. 439,3 milljónir, samanborið við kr. 431,6 milljónir árið 2016, þar af kr. 335,8 milljónir vegna félagslegra íbúða eða 76,4%.
- Veltufé frá rekstri er kr. 287,6 milljónir eða 19,6% miðað við kr. 227,6 milljónir árið 2016 eða 17,2%.
- Fjárfestingar á árinu 2017 voru kr. 108,9 milljónir, samanborið við kr. 113,4 milljónir árið 2016. Stærst er þar breyting á íþróttahúsi, áframhaldandi hitaveituframkvæmdir, vinna við skóla- og frístundasvæði ásamt grunnskóla og gatnagerð.
Það er því ljóst að staða sveitarfélagsins er góð og í jafnvægi. Fjármagn ætti því að vera til áframhaldandi framkvæmda eins og stækkun grunnskólans og endurnýjun á hitaveitu. Þessi góða staða er ekki sjálfgefin og vill sveitarstjórn þakka stjórnendum og starfsfólki sveitarfélagsins fyrir aðhald og skynsemi í rekstri á árinu 2017.
7. Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2018.
Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 að upphæð kr. 2.900.000 vegna aukins rekstrarhalla á málefni fatlaðra. Upphæðin færist á ófyrirséðan kostnað og hefur því ekki áhrif á handbært fé. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2018.
Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 að upphæð kr. 12.488.000 vegna viðgerðar á þaki Byggðasafns Húnaþings og Stranda. Upphæðin færist á ófyrirséðan kostnað og hefur því ekki áhrif á handbært fé. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2018.
Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018 að upphæð kr. 20.000.000 vegna uppsetningar á hreystivelli. Upphæðin verður eignfærð í eignasjóð og verður mætt með lækkun á handbæru fé. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8. Skýrsla sveitarstjóra.
Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 12:24