Oddviti setti fund.
1. Lántaka frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 50.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið vegna hitaveituframkvæmda. Jafnframt er Guðnýju Hrund Karlsdóttur, sveitarstjóra kt. 220571-3869 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Húnaþings vestra að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. Lántaka þessi er í samræmi við lántökuheimild í fjárhagsáætlun Húnaþings vestra á árinu 2017.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Gjaldskrár.
Álagning útsvars, skatta og gjaldskrár ársins 2018.
Lögð fram svohljóðandi tillaga um álagningu fasteignagjalda og útsvars árið 2018.
Útsvar 14,52 %
Fasteignaskattur A-gjald 0,38 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur B-gjald 1,32 % af fm. húss og lóðar
Fasteignaskattur C-gjald 1,32 % af fm. húss og lóðar
Lóðarleiga, almennt gjald 8,55 kr. pr. m2
Lóðarleiga, ræktað land 1,17 kr. pr. m2
Holræsagjald 0,25% af fm.húss og lóðar
Vatnsskattur 0,31% af fm. húss og lóðar
Aukavatnsskattur 14,00 kr. m3
Hreinsun rotþróa:
0-2000 lítra 7.700 kr. pr. þró
2001-4000 lítra 9.200 kr. pr. þró
4001-6000 lítra 11.000 kr. pr. þró
6001 lítra og stærri 2.900 kr. pr. m3
Sorpgjald á íbúðarhúsnæði, regluleg sorphirða. kr. 36.500
Sorpeyðingargjald, sumarbústaðir og íbúðir í dreifbýli
þar sem ekki er hirt sorp. kr. 15.700
Lóðarleigu og fasteignaskatt skv. A-B-og C gjaldi skal innheimta frá fyrstu skráningu hjá Fasteignamati ríkisins, en holræsagjald, vatnsskatt og sorpgjöld skal innheimta frá þeim tíma að fasteign hefur verið skráð með byggingarstig 4.
Gjalddagi gjalda undir kr. 20.000 er 1. maí.
Gjalddagar gjalda á bilinu kr. 20.001 til 38.000 eru 1. apríl og 1. júlí.
Aðrir gjalddagar eru 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst.
Reglur um afslátt fasteignaskatts til elli- og örorkulífeyrisþega.
Lögð fram eftirfarandi tillaga Reglur um afslátt af fasteignaskatti til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru vegna íbúðarhúsnæðis þeirra til eigin nota og fyrir þá sem eiga lögheimili í Húnaþingi vestra. Afslátturinn er tekjutengdur og miðaður við árstekjur skv. nýjasta skattframtali, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekjur og tekur einungis til fasteignaskatts.
Tekjuviðmiðun:
Fyrir einstaklinga:
a) Með heildartekjur allt að kr. 3.400.000 fær 100% afslátt.
b) Með tekjur umfram kr. 4.600.000 enginn afsláttur.
Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:
a) Með heildartekjur allt að kr. 4.600.000 fær 100% afslátt.
b) Með heildartekjur umfram kr. 6.300.000 enginn afsláttur.
Ef tekjur eru skv. framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur.
1) Elli- og/eða 75% örorkulífeyrisþegi hefur heimild til að leggja fram tekjuvottorð vegna tekna næstliðins árs, og breytast þá tekjuforsendur skv. ofangreindu tekjuviðmiði.
2) Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur.
3) Ef um hjón eða sambýlisfólk er að ræða, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára án tillits til þess hvort þeirra er skráð fyrir eigninni.
4)Við andlát maka styrki sveitarsjóður eftirlifandi um sömu upphæð og nemur álögðum fasteignaskatti ársins.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá leikskóla í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir íþróttamiðstöð Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hirðu móttöku- og flokkunarstöð Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Húnaþingi vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá annarra þjónustustofnana aðalsjóðs og þjónustumiðstöðvar.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir Hafnarsjóð Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga að gjaldskrá Brunavarna Húnaþings vestra.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lögð fram tillaga um að upphæð frístundakorts fyrir börn á aldrinum 6-18 ára verði kr. 18.000 á árinu 2018.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. Fjárhagsáætlun ársins 2018 ásamt 3ja ára áætlun fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki. Fyrri umræða.
Lögð fram eftirfarandi tillaga „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa framlagðri fjárhagsáætlun fyrir árið 2018 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2019-2021 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 14. desember nk. kl:15:00.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 10:32