Oddviti setti fund.
- Fundargerðir byggðarráðs, formaður kynnti.
Fundargerð 985. fundar byggðarráðs frá 19. nóvember sl. Fundargerð í 1 lið.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Fundargerð landbúnaðarráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 163. fundar frá 14. nóvember sl. Fundargerð í 5 liðum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. Fundargerð veituráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 2. fundar frá 6. nóvember sl. Fundargerð í 1 lið.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 3. fundar frá 19. nóvember sl. Fundargerð í 2 lið.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4. Fundargerð skipulags- og umhverfisráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 303. fundar frá 1. nóvember sl. 1. dagskráliður sem frestað var á síðasta fundi sveitarstjórnar.
- dagskrárliður borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
5. Fjárhagsáætlun ársins 2019 ásamt 3ja ára áætlun fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki. Síðari umræða.
Lögð fram til síðari umræðu tillaga að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja fyrir árið 2019 ásamt áætlun fyrir árin 2020-2022.
Lögð fram svohljóðandi tillaga „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 ásamt 3ja ára áætlun fyrir árin 2020-2022 fyrir sveitarsjóð Húnaþings vestra og undirfyrirtæki.” Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Húnaþing vestra
Fjárhagsáætlun 2019
Greinargerð
Gerð fjárhagsáætlunar 2019
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 hefur eins og undanfarin ár verið lögð áhersla á hagkvæmni í rekstri sveitarfélagsins og skynsemi í framkvæmdum. Sem fyrr hefur samvinna á milli meirihluta og minnihluta sveitarstjórnar um áherslur við fjárhagsáætlunargerð verið afar góð. Fjárhagsáætlanir einstakra deilda eru unnar í góðri samvinnu við forstöðumenn stofnana.
Í samræmi við ákvæði fjármálareglna um skuldaviðmið og jafnvægi í rekstri sveitarfélaga er rekstrarniðurstaða fjárhagsáætlunar ársins 2019 fyrir samstæðu A- og B-hluta sveitarsjóðs jákvæð. Skuldahlutfallið er skv. áætlun 47,6% fyrir árið 2019 en má skv. ákvæðum fjármálareglna mest vera 150%. Fyrir árið 2018 var þetta hlutfall áætlað 59,5% en skv. útkomuspá er það 51,9%. Skv. þriggja ára áætlun verður skuldahlutfallið árið 2020 59,5%, 69,8% árið 2021 og 69 % árið 2022.
Undanfarin ár hefur fjármagnskostnaður sveitarfélagsins lækkað umtalsvert þar sem ekki voru tekin lán á árunum 2011-2014 og 2016. Árin 2015, 2017 og 2018 voru tekin lán vegna framkvæmda við hitaveitu í dreifbýli samtals kr. 150 millj. Á árinu 2019 er gert ráð fyrir lántöku vegna hitaveituframkvæmda kr. 20 milljónir og hjá eignasjóði vegna hönnunar viðbyggingar við grunnskólann kr. 40 milljónir. Á sama tíma eru eldri lán greidd niður um kr. 49 milljónir.
Á liðnum árum hefur sveitarstjórn Húnaþings vestra almennt hækkað gjaldskrár í samræmi við verðlagsbreytingar og er sami háttur hafður á fyrir árið 2019. Þó skal nefnt að vistunargjald leikskóla hefur ekki verið hækkað frá árinu 2011.
Álagningaprósenta A-gjalds fasteignaskatts er lækkuð í áætlun ársins 2019, annað árið í röð, þar sem fasteignamat í sveitarfélaginu hélt áfram að hækka á milli ára. Greiðslur fasteignaeigenda í Húnaþingi vestra eiga því almennt að vera svipaðar árið 2019 og þær voru 2018.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra leggur sem fyrr mikið upp úr stuðningi við íþrótta- og tómstundastarf barna á árinu 2019. Það er meðal annars gert með myndarlegum styrkjum til USVH sem svo útdeilir því fjármagni til íþróttafélaganna í sveitarfélaginu. Einnig er veittur frístundastyrkur eins og undanfarin ár fyrir hvert barn frá 6 ára aldri allt til 18 ára aldurs. Á árinu 2019 er frístundastyrkur hækkaður. Framboð íþróttagreina hjá íþróttafélögunum í sveitarfélaginu er sem fyrr gott og æfingagjöld lág. Skiptir þar án efa miklu máli styrkur sveitarfélagsins til félaganna, ekki bara fjárhagslegur heldur líka í formi afnota af íþróttamannvirkjum. Þá eru greiddir akstursstyrkir til foreldra í dreifbýli sem þurfa að keyra sérstaklega til að koma / sækja börn á æfingar.
Gjöld í Tónlistarskóla Húnaþings vestra eru sömuleiðis með þeim lægstu á landinu og ekki hafa verið settar takmarkanir á nemendafjölda við tónlistarskólann eins og víða tíðkast. Úrval hljóðfæra í boði fyrir nemendur tónlistarskólans er einnig með allra besta móti.
Eins og undanfarin ár mun sveitarfélagið halda áfram að styðja vel við dreifnám Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra m.a. með greiðslu á húsaleigu fyrir skólahúsnæðið og rekstur þess sem og kaupum á nauðsynlegum búnaði. Á árinu 2019 er gert ráð fyrir því að þessi styrkur nemi 6,4 milljónum króna.
Umfangsmiklum hitaveituframkvæmdum í dreifbýli sem staðið hafa frá árinu 2014 er nú lokið í bili. Verið er að bora tilraunaholu á Reykjatanga og á árinu 2019 er gert ráð fyrir undirbúningi næstu skrefa í stækkun hitaveitunnar í Hrútafirði. Þá er fyrirhugað að fara í viðamiklar viðhaldsframkvæmdir við hitaveitu á Hvammstanga á næstu árum enda lagnir þar sumar að nálgast hálfrar aldar afmælið.
Stærstu fjárfestingarverkefni ársins 2019 eru vinna við stækkun grunnskólans, stækkun íþróttamiðstöðvar, undirbúningur fyrir áframhaldandi framkvæmdir við ljósleiðara og hitaveitu.
Húnaþing vestra veitir sem fyrr fjölmörgum félagasamtökum og menningarverkefnum styrki á árinu 2019 að fjárhæð alls 25,3 milljónir króna. Því til viðbótar eru greiddir styrkir til leikfélags, styrkir vegna fasteignagjalda og hitaveitu til félaga o.fl. Að síðustu skal nefnt að í fjárhagsáætlun ársins 2019 er gert ráð fyrir að áfram verði fjármagni veitt í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra sem stofnaður var árið 2014. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf í sveitarfélaginu en reynslan hefur sannað gildi sjóðsins.
Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2019
Áætlunin er lögð fram með um 75 þús. kr. tekjuafgangi. Áætlað er að fráveita og vatnsveita skili rekstrarafgangi en önnur B-hluta fyrirtæki séu rekin með halla.
Tekjur samstæðunnar eru áætlaðar 1.541 millónir. kr. en gjöld 1.519 millj. kr. án fjármagnsliða.
Fjármagnsliðir eru áætlaðir 21,7 millj. kr.
Veltufé frá rekstri til greiðslu afborgana lána og til fjárfestinga er kr. 85 millj.
Hlutfall veltufjár frá rekstri er áætlað 5,5%
Áætlað er að afborgun langtímalána nemi kr. 49,0 millj. á árinu 2019.
Handbært fé í árslok 2019 er áætlað kr. 103,2 millj. sem er lækkun um 88 millj. kr. frá ársbyrjun meðal annars vegna greiðslu að upphæð 74,5 milljóna til Brúar lífeyrissjóðs í tengslum við breytingar á lífeyriskerfi opinberra starfsmanna og framkvæmda á árinu.
Gert er ráð fyrir hækkun skulda og skuldbindinga um 4 millj. kr. frá afkomuspá ársins 2018.
Gert er ráð fyrir eignfærðri fjárfestingu á árinu 2019 upp á kr. 182,5 milljónir.
Í þriggja ára áætlun, árin 2020, 2021 og 2022, er gert ráð fyrir eignfærðri fjárfestingu samtals að upphæð kr. 771 millj., að mestu vegna viðbyggingar við grunnskóla ásamt framkvæmdum við hitaveitu og vatnsveitu. Á árunum 2020, 2021 og 2022 er gert ráð fyrir lántökum samtals að upphæð 650 millj. kr. en á sama tíma verði á því tímabili sem áætlunin nær til greidd niður lán um 226 millj. kr.
Sveitarstjórn fagnar því að rekstur sveitarfélagsins leyfi áframhaldandi framkvæmdir til hagsbóta fyrir íbúa í Húnaþingi vestra. Þessar framkvæmdir eru aðeins mögulegar vegna ábyrgrar fjármálastjórnar og jafnvægi í rekstri undanfarin ár. Afar mikilvægt er að halda áfram að sýna ráðdeild í rekstri, halda fyrirhugðum framkvæmdum áfram af skynsemi og lágmarka lántökur eins og kostur er.
6. Skýrsla sveitarstjóra
Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:26