Oddviti setti fund og óskaði eftir að bæta á dagskrá sem 7. dagskrárlið Samkomulag milli Húnaþings vestra og Uppbyggingar ehf. um leigu fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi að Höfðabraut 28.
Liður 7 skýrsla sveitarstjóra fellur niður. Samþykkt með 7 atkvæðum.
1. Fundargerðir byggðarráðs, formaður kynnti.
Fundargerð 995. fundar byggðarráðs frá 18. mars sl. Fundargerð í 6 liðum.
2. dagskrárliður, 1903021 umsókn um byggingarlóð að Norðurbraut 10 á Hvammstanga frá Svövu Lilju Magnúsdóttur. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. dagskrárliður, 1903020 Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og staðfest með 7 atkvæðum.
6. dagskrárliður, Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013. Sveitarstjórn tekur heils hugar undir bókun byggðarráðs.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 996. fundar byggðarráðs frá 1. apríl sl. Fundargerð í 11 liðum.
3.dagskrárliður, 1706006 Erindi frá Ámundakinn efh. dags. 19. febrúar sl. þar sem
Ámundakinn ehf. óskar eftir að kaupa 6,90% eignarhlut eða 1.693.983 hluti Húnaþings
vestra í Fasteignafélaginu Borg efh. á genginu 2,42, samtals að upphæð kr. 4.100.000 sem
greiðist með 1.000.000 hlutum í Ámundakinn á genginu 2,1, samtals 2.100.000- og
2.000.000 kr. í peningum.
Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
9. dagskrárliður Sveitarstjórn leggur fram eftirfarandi bókun
„Umsögn sveitarstjórnar Húnaþings vestra um frumvarp til laga um fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.), 647. mál.
Sveitarstjórn Húnaþings vestra telur nauðsynlegt að Alþingi geri nauðsynlegar endurbætur
á frumvarpi um breytingar á lögum um fiskeldi þannig að það samræmist stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar um að gætt skuli varúðar við uppbyggingu fiskeldis á Íslandi og stuðlað
að sjálfbærni með vernd lífríkisins að leiðarljósi.
Í Húnaþingi vestra hafa tekjur íbúa af laxveiði og tengdri þjónustu aukist á liðnum árum
og er um tekjur að ræða sem skipta verulegu máli fyrir eigendur margra jarða, ekki síst
sauðfjárbændur sem mátt hafa þola miklar skerðingar á lífskjörum síðustu ár og horfa
fram á mikla óvissu framundan um sína afkomu. Það er því mikið hagsmunamál fyrir
samfélagið í Húnaþingi vestra að tekið sé mið af þýðingu villtra laxastofna fyrir afkomu
íbúa í héraðinu þegar Alþingi tekur frumvarpið til efnislegrar umfjöllunar. Auk þess er
mikilvægt að horft sé til þess að náttúran sé látin njóta vafans og þess að íslenskir
laxastofnar og laxfiskar eigi sjálfstæðan rétt til að þróast áfram á sínum forsendum, en
einnig svo að komandi kynslóðir geti notið þeirra. Þess má geta að frumvarpið samræmist
vart markmiðsyfirlýsingu núgildandi fiskeldislaga sem felur í sér að vöxtur og viðgangur
fiskeldis megi ekki gerast á kostnað viðgangs og nýtingar villtra fiskstofna. Sveitarstjórn
Húnaþings vestra telur að uppbygging fiskeldis á Íslandi þurfi að vera fyrirsjáanleg og
byggja á bæði sérfræðiþekkingu úr nærsamfélagi viðkomandi sveitarfélaga og ráðgjöf
stofnana ríkisins, svo unnt sé að ná meiri sátt um atvinnugreinina. Sveitarstjórn áréttar
mikilvægi þess að gætt sé fyllstu varfærni í aukningu fiskeldis í sjó þannig að ekki verði
unninn óafturkræfur skaði á þeirri sérstöðu sem Ísland hefur í okkar heimshluta vegna
hinna einstöku villtu laxastofna sem styrkja búsetu og veita atvinnu í gegnum verðmætar
laxveiðiár. Sérstaklega er hvatt til þess að stjórnvöld hafi það að sérstöku átaksverkefni að
stuðla að uppbyggingu umhverfisvænni leiða í fiskeldi, til dæmis með lokuðum sjókvíum,
landeldi og eldi á ófrjóum laxi, svo sem hvað varðar stuðning við þróunarstarf,
lagasetningu og gjaldtöku.
Úr stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis: „Fiskeldi er vaxandi
atvinnugrein sem felur í sér tækifæri til atvinnuuppbyggingar en þarf að byggja upp með
ýtrustu varúð í samræmi við ráðgjöf vísindamanna þannig að líffræðilegri fjölbreytni verði
ekki ógnað. Samhliða vexti greinarinnar þarf að tryggja nauðsynlegar rannsóknir og
eðlilega vöktun áhrifa á lífríkið.“
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 997. fundar frá 8. apríl sl. Fundargerð í 9 liðum
8. dagskrárliður 1904011 Uppsögn skólastjóra Tónlistarskóla Húnaþings vestra, Elínborgar Sigurgeirsdóttur. Lögð fram eftirfarandi bókun „Sveitarstjórn þakkar Elínborgu fyrir vel unnin og farsæl störf fyrir tónlistarskólann á 35 ára starfstímabili.“
9. dagskrárliður 1802043 Borðeyri- verndarsvæði í byggð. Lögð fram eftirfarandi bókun „Sveitarstjórn fagnar staðfestingu ráðherra á ósk sveitarstjórnar um að hluti Borðeyrar verði skilgreindur sem verndarsvæði í byggð í samræmi við lög um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015. Markmið þess að gera hluta Borðeyrar að sérstöku verndarsvæði er að viðhalda og styrkja byggð á Borðeyri með þeim hætti að söguleg arfleifð kaupstaðarins fái notið sín og gildi hennar undirstrikað gagnvart heimamönnum jafnt sem aðkomufólki en þó ekki síst gagnvart komandi kynslóðum“.
Tillagan er staðfest að fenginni umsögn Minjastofnunar Íslands sem meðal annars horfir til afmörkunar verndarsvæðis, og gagna sem liggja til grundvallar greinargerð sem fylgir tillögunni, þ.m.t. fornleifaskráningar, húsakönnunar, mats á varðveislugildi og skilmála um verndun og uppbyggingu innan marka verndarsvæðisins.
Staðfestingin mun vernda sérkenni byggðakjarnans í komandi skipulagsvinnu.“
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Fundargerð félagsmálaráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 201. fundar frá 20. mars sl. Fundargerð í 5 liðum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. Fundargerð fræðsluráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 198. fundar frá 19. mars sl. Fundargerð í 3 liðum.
Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 199. fundar frá 4. apríl sl. Fundargerð i 2 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4. Fundargerð landbúnaðarráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 167. fundar frá 3. apríl sl. Fundargerð í 4 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
5. Fundargerð skipulags- og umhverfisráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 308. fundar frá 4. apríl sl. Fundargerð í 7 liðum.
1. dagskrárliður 1901011-2 Grenndarkynning vegna fyrirhugaðra bygginga raðhúsa á lóðunum Lindarvegur 1 og 5. Ein athugasemd barst. Fyrir liggur tillaga skipulagsfulltrúa að svari vegna athugasemdarinnar. Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs samþykkt með 7 atkvæðum.
2. dagskrárliður 1902003 Grenndarkynning vegna byggingarreits og lóðastækkunar á Norðurbraut 24. Engin athugasemd barst. Afgreiðsla skipulags- og umhverfisráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3. dagskrárliður 1705004 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
4. dagskrárliður 1904003 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
5. dagskrárliður 1904004 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
6. dagskrárliður 1903025 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
7. dagskrárliður 1904005 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Fundargerð veituráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 8. fundar frá 21. mars sl. Fundargerð í 2 liðum.
1. dagskrárliður 1903024 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
2. dagskrárliður 1902032 borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Fundargerð í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
7. Samkomulag milli Húnaþings vestra og Uppbyggingar ehf. um leigu 4 íbúða í fjölbýlishúsi að Höfðabraut 28.
Samkomulagið borið undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. Sveitarstjóra falin undirritun samningsins.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 15:48