Oddviti setti fund.
1. Kosning í byggðarráð Húnaþings vestra.
Lögð fram eftirfarandi tillaga:
Byggðaráð til eins árs, aðalmenn:
Friðrik Már Sigurðsson (B), formaður
Sveinbjörg Rut Pétursson (B), varaformaður
Magnús Magnússon (N)
Byggðaráð til eins árs, varamenn:
Ingveldur Ása Konráðsdóttir (B)
Þorleifur Karl Eggertsson (B)
Sigríður Ólafsdóttir (N)
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
2. Fundargerðir byggðarráðs, formaður kynnti.
Fundargerð 1002. fundar byggðarráðs frá 31. maí sl. Fundargerð í 10 liðum.
Dagskrárliður 2 1905085 Erindi frá ungmennaráði um heimild til að nýta kr. 70.000 af því fjármagni sem ráðið hefur til ráðstöfunar til stuðnings viðburði á Eldi í Húnaþingi sem er sérstaklega ætlaður ungu fólki. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 8 um ráðningu skólastjóra tólistarskóla. Tillaga byggðarráðs um að ráða Louise Price í stöðu skólastjóra borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 9 1904042 um tilboð í skólaakstur 2019/2020 – 2022/2023 þar sem afgreiðsla byggðarráðs um að taka lægstu tilboðum í leiðir 1, 2, 3, 6, 7 og 8 er borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerð 1003. fundar byggðarráðs frá 5. júní sl. Fundargerð í 6 liðum.
Dagskrárliður 1 1906008 um úthlutun úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra tekin fyrir sem sér dagskrárliður undir 12. lið fundarins.
Dagskrárliður 3 1904042 um tilboð í skólaakstur, leið 4 og 5. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 5 1906007 um erindi frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs um tilraunaverkefni á fjölskyldusviði vegna skólaforðunar þar sem óskað er eftir tímabundnu 100% stöðugildi til eins árs, frá 15. ágúst nk. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 6 1905084 um erindi frá ungmennaráði um heimild til að nýta kr. 50.000 af því fjármagni sem ráðið hefur til ráðstöfunar til stuðnings vorferðar nemenda í dreifnámi FNV á Hvammstanga eftir próflok. Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
3. Fundargerð félagsmálaráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 203. fundar frá 28. maí sl. Fundargerð í 4 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4. Fundargerð fræðsluráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 200. fundar frá 29. maí sl. Fundargerð í 5 liðum.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum
5. Fundargerð skipulags- og umhverfisráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 309. fundar frá 6. júní sl. Fundargerð í 5 liðum.
Dagskrárliður 1, erindi nr. 1905012 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 2, erindi nr. 1905013 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 3, erindi nr. 1705034 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 4, erindi nr. 1906014 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 5, erindi nr. 1906013 borin undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6. Fundargerð veituráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 10. fundar frá 28. maí sl. Fundargerð í 4 liðum.
Dagskrárliður 4a um lágmarksgjald vegna inntaks hitaveitu í dreifbýli. Afgreiðsla veituráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Dagskrárliður 4b um hitamælingu í holu RS-15 á Reykjum í Hrútafirði. Afgreiðsla veituráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
7. Fundargerð ungmennaráðs, oddviti kynnti.
Fundargerð 55. fundar frá 16. maí sl. Fundargerð í 5 liðum.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8. Erindisbréf.
Lögð framendurskoðuð erindisbréf eftirtalinna ráða:
Borið undir atkvæði erindisbréf byggðarráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
Borið undir atkvæði erindisbréf veituráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
Borið undir atkvæði erindisbréf félagsmálaráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
Borið undir atkvæði erindisbréf fræðsluráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
Borið undir atkvæði erindisbréf landbúnaðarráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
Borið undir atkvæði erindisbréf skipulags- og umhverfisráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
Borið undir atkvæði erindisbréf ungmennaráðs, samþykkt með 7 atkvæðum.
9. Viðauki 2.
Sveitarstjóri og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs leggja fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2019 að upphæð kr. 3.500.000 vegna tilraunaverkefnis á fjölskyldusviði vegna skólaforðunar. Kostnaði verður mætt með lækkun á handbæru fé. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
10. Úthlutun úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði.
Fjórar umsóknir bárust.
Lögð fram eftirfarandi tillaga að úthlutun:
„Kristólína, verkefni: Vöruþróun og markaðssetning á afþreyingavörumerkinu Ráðgátur kr. 600.000.
Seal Travel, verkefni: Markaðssókn Seal Travel kr. 300.000.
Hestatannlæknirinn ehf, verkefni: Hestatannlæknirinn – Breytingar á atvinnuhúsnæði kr. 600.000.”
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Friðrik Már Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar vegna vanhæfis.
11. Ráðning sveitarstjóra.
Sveitarstjórn hefur ákveðið að ráða í starf sveitarstjóra án auglýsingar, í stað Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur sem sagt hefur starfi sínu lausu. Fyrir fundinum liggur tillaga um að ráða Ragnheiði Jónu Ingimarsdóttur í starf sveitarstjóra Húnaþings vestra frá 15. ágúst n.k. Tillagan var samþykkt samhljóða og var oddvita falið að undirrita fyrirliggjandi ráðningarsamning við Ragnheiði Jónu.
12. Sumarfrí sveitarstjórnar. Lögð fram eftirfarandi tillaga “ Sveitarstjórn samþykkir sumarfrí sveitarstjórnar í júlí og ágúst. Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar verður 12. september nk.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
13. Skýrsla sveitarstjóra.
Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega fundi sveitarstjórnar.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl: 15:44.