Oddviti setti fund. Gengið var til dagskrár.
1. Viðauki nr. 5 við fjáhagsáætlun ársins 2022.
Lögð fram eftirfarandi tillaga að viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2022 að upphæð kr. 45.493.000:
0010 – Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Hærri framlög ársins 2022 kr. -12.000.000
0218 – Húsaleigubætur
Greiðsla húsaleigubóta kr. 750.000
0244 – Dagvist aldraðra
Laun og launatengd gjöld kr. - 1.797.000
Aðkeypt þjónusta kr. 3.950.000
04211 – Grunnskólinn
Aðrar tekjur kr. -1.500.000
Minniháttar tæki kr. 1.150.000
Skólaakstur kr. 7.000.000
Aðkeypt þjónusta kr. -1.000.000
0430 – Skólabúðirnar Reykjum
Þátttaka í sameiginlegum kostnaði kr. 3.600.000
0721 Slökkvilið
Laun og launatengd gjöld kr. 14.300.000
8110 – Skólabúðirnar að Reykjum
Húsaleiga kr. -3.500.000
Aðrar tekjur kr. -3.600.000
Viðhald kr. 33.400.000
Önnur aðkeypt þjónusta kr. 2.500.000
2140 – Skrifstofa
Laun og launatengd gjöld kr. 12.600.000
2190 – Ófyrirséð
Ófyrirséð kr. -10.360.000
Aukinni neikvæðri rekstrarafkomu verður mætt með lækkun handbærs fjár.
Greinargerð:
Nýjar áætlanir Jöfnunarsjóðs gera ráð fyrir hærri framlögum en í upphaflegri fjárhagsáætlun.
Aukinn kostnaður vegna húsaleigubóta er tilkominn vegna aukins fjölda styrkþega haustið 2022.
Breyttu fyrirkomulagi á akstri í dagvistun aldraðra fylgir kostnaðarauki.
Skólaakstur verður dýrari en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, m.a. vegna hækkunar á verðbólgu og leiðréttingu á akstursleiðum. Vegna bilunar á tæki verður að hækka framlag til tækjakaupa grunnskólans, en á móti er hægt að hækka aðrar tekjur sem og lækka aðkeypta þjónustu.
Nýir kjarasamningar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna leiddu til töluvert meiri hækkunar á launum en ráð var fyrir gert í fjárhagsáætlun ársins 2022.
Á árinu var nauðsynlegt að ráðast í umfangsmikið viðhald á Reykjaeignum og kaup á annarri aðkeyptri þjónustu. Nýjum húsaleigusamningi fylgja auknar tekjur.
Aukinn launakostnaður skrifstofu er m.a. vegna biðlaunaréttar fráfarandi sveitarstjóra.
Samhliða viðauka nr. 5 lækkar liðurinn 2190 – ófyrirséð um kr. 10.360.000.
Viðaukinn mun leiða til aukningar á neikvæðri rekstrarafkomu um kr. 45.493.000.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
2. Samkomulag um uppgjör vegna rekstrar skólabúða að Reykjum sem samþykkt var á 1154. fundi byggðarráðs þann 24. október 2022. Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir framlagt samkomulag og felur sveitarstjóra og formanni stjórnar Reykjaeigna undirritun þess. Sveitarstjórn tekur undir þakkir byggðarráðs til fráfarandi rekstraraðila fyrir farsælt samstarf við rekstur skólabúðanna sl. 20 ár.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 11:11.