1.
|
Ársreikningur Húnaþings vestra 2023 - 2404000
|
|
Kristján Jónasson endurskoðandi KPMG mætti til fundar við sveitarstjórn. Kristján lagði fram og skýrði ársreikninginn 2023. Kristján svaraði í framhaldinu fyrirspurnum sveitarstjórnarmanna. Sigríður Ólafsdóttir vék af fundi kl. 15:54 og kom aftur til fundar kl. 16:06. Kristján Jónasson vék af fundi kl. 16:21. Í framhaldinu lagði oddviti fram eftirfarandi tillögu: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að vísa ársreikningi sveitarsjóðs Húnaþings vestra og undirfyrirtækja fyrir árið 2023 til síðari umræðu.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
2.
|
Byggðarráð - 1208 - 2403003F
|
|
Fundur haldinn 18. mars. Fundargerð í 10 liðum. Formaður kynnti.
1. dagskrárliður, ósk um breytingu á aðalskipulagi 2014-2026 (2403007) Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. 2. dagskrárliður, umsókn um lóðina Lindarveg 1 (2403008) Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. 10. dagskrárliður, viðauki við samning um Náttúrustofu Norðurlands vestra (2403040) Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
3.
|
Byggðarráð - 1209 - 2403006F
|
|
Fundur haldinn 25. mars. Fundargerð í 9 liðum. Formaður kynnti.
4. dagskrárliður, umsögn um breytingu á afgreiðslu Íslandspósts (2403042) Sveitarstjórn tekur undir bókun byggðarráðs og gerir að sinni:
„Sveitarstjórn Húnaþings vestra harmar einhliða ákvörðun Íslandspósts um skerðingu starfsemi sinnar í Húnaþingi vestra. Um er að ræða breytingu sem felur í sér niðurlagningu 2,5 stöðugilda á pósthúsinu á Hvammstanga sem í ekki stærra samfélagi er skarð í atvinnulíf svæðisins. Jafnframt felst í breytingunni rýring á samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem selja vörur í vefverslun á svæðinu þar sem breytingar á aðgengi að þjónustu geta haft áhrif á afgreiðsluhraða. Rök Íslandspósts um að með breytingunni gefist tækifæri á aukinni þjónustu með því að fá póstbíl til sín eru vissulega rétt en bent er á að sú þjónusta ber gjald sem rýrir enn frekar samkeppnishæfni þessara fyrirtækja sem þegar búa við aðstöðumun vegna staðsetningar.
Gengið gegn stefnu stjórnvalda
Í byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi 2022 eru sett fram tvö meginmarkmið stjórnvalda í byggðamálum. Annars vegar að innviðir mæti þörfum samfélagsins og hins vegar að byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær. Lokun pósthússins á Hvammstanga gengur gegn báðum þessum markmiðum.
Í drögum að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu og jöfnun aðgengis sem birt voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í lok árs 2023 eru settar fram tillögur að viðmiðum um nærþjónustu þá sem aðengileg ætti að vera í ákveðnum stærðum samfélaga. Þar er bæjum skipt upp í fjóra flokka, þorp með 50-400 íbúa, minni bæi með 400-2000 íbúa, stærri bæi með yfir 2000 íbúa og að síðustu höfuðborg/svæðisborg. Í Húnaþingi vestra eru í dag um 1250 íbúar þar af um helmingur búsettur á Hvammstanga. Sveitarfélagið fellur því í annan flokkinn, minni bæi með 400-2000 íbúa. Skv. skýringarmynd sem sýnir tillögu að stigum þjónustu sem þar er að finna skal vera pósthús í bæjum af þeirri stærðargráðu.
Þó svo að drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu hafi ekki verið lögð fram í lokaútgáfu er ekki að finna mótbárur við skilgreiningu á þjónustustigum í þeim umsögnum sem lagðar voru fram og því hæpið að þar yrði gerð breyting á í lokameðferð skjalsins. Einnig má benda á að sú skipting sem þar er sett fram var unnin í samráði við hagaðila og landshlutasamtök. Vert er að taka fram að Íslandspóstur gerði ekki athugasemd við framangreind drög í nýafstöðnu umsagnarferli.
Sveitarstjórn harmar því að opinbert hlutafélag gangi gegn stefnu stjórnvalda með eins skýrum hætti og gert er með þeim breytingum sem kynntar hafa verið.
Umhverfissjónarmið
Það skýtur jafnframt skökku við að breytingarnar fela í sér stóraukið kolefnisfótspor með daglegum ferðum póstbíls milli Hvammstanga og Blönduóss sem er í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um minnkun kolefnisspors og alþjóðlegar skuldbindingar þar um. Eru þær ferðir til viðbótar við reglubundar ferðir póstbíla landshluta í milli.
Atriði sem lögð eru til grundvallar við mat á beiðni
Í bréfi Byggðastofnunar er vísað til 5. gr. reglna um staðsetningu, fyrirkomulag og öryggismál á afgreiðslustöðum fyrir póstþjónustu. Þar koma fram þau viðmið sem lögð eru til grundvallar við mat stofnunarinnar á beiðni Íslandspóst um lokun afgreiðslustaða: 1. Fjöldi íbúa á því svæði sem afgreiðslustaðnum er ætlað að þjóna. Eins og fram hefur komið eru íbúar Húnaþings vestra um 1250 þar af u.þ.b. helmingur á Hvammstanga. 2. Stærð þess svæðis sem afgreiðslustaðurinn þjónar. Húnaþing vestra er landmikið sveitarfélag. Það nær í suðri frá miðri Holtavörðuheiði og Arnarvatni norður Strandir að Stikuhálsi og að Gljúfurá í austri. Þeir íbúar sem lengst þurfa að fara úr vestri eru í 72 km fjarlægð frá Hvammstanga og 132 km fjarlægð frá Blönduósi. Landpóstur mun halda áfram að þjónusta dreifbýlið, sem er vel, en eins og verið hefur aðeins tvisvar í viku. Þurfi íbúar dreifbýlis að fá sendingar á vörum utan þeirra daga þurfa þeir þá að fara inn á Hvammstanga til að ná í sínar sendingar. Sú staða getur komið upp að sendingar sem þola litla bið, svo sem varahlutir í tæki eða lyf, þurfi þá að sækja á Blönduós sem er í 60 km fjarlægð frá Hvammstanga og þá um 132 km fjarlægð frá þeim sem vestast búa í sveitarfélaginu aðra leiðina. Fyrir þá sem vestast búa er styttra að fara í Búðardal en skv. bréfi Íslandspósts stendur líka til að loka póstafgreiðslunni þar. 3. Möguleiki íbúa á að sækja þjónustuna annað. Eins og fram hefur komið er aðeins um pósthús á Blönduósi að ræða. 4. Samgöngur á svæðinu. Þjóðvegur 1 liggur í gegnum sveitarfélagið og á milli Hvammstanga og Blönduóss. Bent er á að þó vegasamgöngur séu góðar þá spillist færð reglulega þar á milli á vetrum. Sú staða getur því komið upp að póstbíll komist með sendingar úr Reykjavík á Blönduós að kvöldi en póstbíllinn komist ekki með sendingar morguninn eftir á Hvammstanga. Í þeim tilfellum er um þjónustuskerðingu að ræða þar sem ekki er þá hægt að nálgast sendingu á pósthúsi eins og verið hefur. 5. Fjöldi afgreiðslna á afgreiðslustaðnum á ári. Í erindi Íslandspósts eru ekki upplýsingar um sendingar á pósthúsið á Hvammstanga. Farið var yfir þær upplýsingar á fundi forsvarsmanna Póstsins og byggðarráðs Húnaþings vestra þegar breytingarnar voru kynntar. Óumdeilt er að bréfasendingum er að fækka en á móti kemur að pakkasendingum er að fjölga. Að sama skapi er samkeppni í pakkasendingunum að aukast. Íslandspóstur virðist ætla að draga sig til baka í þeirri samkeppni, frekar en að sækja fram, miðað við þau áform að loka pósthúsum á 10 stöðum á landinu í þessari atrennu. 6. Annað sem getur haft áhrif á möguleika íbúa á að sækja póstþjónustu sem fellur undir alþjónustu.
Af framangreindu má sjá að sveitarstjórn Húnaþings vestra leggst alfarið gegn því að sú breyting sem Íslandspóstur hefur óskað eftir að gerð verði á rekstri póstþjónustu í Húnaþingi vestra nái fram að ganga. Sveitarstjórn sýnir því skilning að bregðast þurfi við breyttu rekstrarumhverfi. Þeim áskorunum telur sveitarstjórn hins vegar að mæta mætti með skerðingu á opnunartíma pósthússins og breytingum á starfsmannahaldi samhliða því í stað þess að loka alfarið. Bent er á að skv. upplýsingum frá fulltrúum Póstsins verður ráðinn starfsmaður vegna aukins umfangs verkefna á pósthúsið á Blönduósi. Aðeins mun því fækka um sem nemur 1,5 stöðugildi. Jafnframt bætist við akstur milli Blönduóss og Hvammstanga. Einnig hefði mátt gera breytingar á húsnæði Póstsins á Hvammstanga í takt við minnkandi umsvif.
Sveitarstjóra er falið að koma framangreindu á framfæri við Byggðastofnun og jafnframt óska eftir því að forsvarsmenn Póstsins kynni fyrirhugaðar breytingar á íbúafundi.“
7. dagskrárliður, viljayfirlýsing um uppbyggingu á leiguíbúðum í Húnaþingi vestra (2403057) Lögð fram eftirfarandi bókun: „Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar viljayfirlýsingu á milli Húnaþings vestra og Leigufélagsins Bríetar vegna uppbyggingar leiguíbúða, yfirtöku eigna og styrkingu leigumarkaðar í sveitarfélaginu á vegum Bríetar.“
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
4.
|
Byggðarráð - 1210 - 2403009F
|
|
|
|
Fundur haldinn 8. apríl. Fundargerð í 8 liðum. Formaður kynnti.
Elín Jóna Rósinberg og Þorgrímur Guðni Björnsson véku af fundi kl. 16:41. 1. dagskrárliður, tilboð í Engjabrekku (2403069) Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum. Elín Jóna og Þorgrímur Guðni komu til fundar að nýju kl. 16:42.
4. dagskrárliður, slagorð Húnaþings vestra (2403060) Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6. dagskrárliður, skipan í starfshóp (2404086) Afgreiðsla byggðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Aðrir liðir fundargerðarinnar og fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
5.
|
Skipulags- og umhverfisráð - 366 - 2404001F
|
|
Fundur haldinn 4. apríl. Fundargerð í 4 liðum. Formaður kynnti.
|
|
5.1
|
2403066 - Bergsstaðir Miðfirði, umsókn um byggingarheimild.
|
|
Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
|
|
5.2
|
2404001 - Kirkjuhvammur ræktunarland, umsókn um að fella út lóð.
|
|
Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
|
|
5.3
|
2403053 - Kirkjuhvammur lóð, umsókn um stofnun lóðar.
|
|
Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
|
|
5.4
|
2404073 - Hvammstangabraut 23-43, umsókn um lagningu ljósleiðaraheimtauga.
|
|
Dagskrárliðurinn borinn undir atkvæði og samþykktur með 7 atkvæðum.
|
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
6.
|
Félagsmálaráð - 254 - 2403007F
|
|
Fundur haldinn 3. apríl. Fundargerð í 6 liðum. Oddviti kynnti.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
7.
|
Landbúnaðarráð - 209 - 2403008F
|
|
Fundur haldinn 3. apríl. Fundargerð í 1 lið. Formaður kynnti.
1. dagskrárliður, umsóknir um grenjavinnslu og minkaveiði 2024-2026 (2403067) Afgreiðsla landbúnaðarráðs borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundargerðin í heild sinni borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
8.
|
Stýrihópur um barnvænt og heilsueflandi sveitarfélag - 3 - 2404011F
|
|
Fundur haldinn 3. apríl. Fundargerð í 1 lið. Magnús Vignir Eðvaldsson kynnti.
Fundargerðin borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
9.
|
Gjaldskrár 2024 - 2308025
|
|
Á 379. fundi sveitarstjórnar var sveitarstjóra falið að undirbúa gjaldskrárbreytingar og leggja fyrir næsta fund sveitarstjórnar vegna stöðugleikasamninga, sérstaklega þær gjaldskrár sem varða barnafjölskyldur. Á grundvelli yfirferðar er eftirfarandi tillaga lögð fram: „Eftirfarandi gjaldskrár verða teknar upp fyrir árið 2024 og þeir liðir er sérstaklega varða barnafjölskyldur hækkaðir um 2,5% frá árinu 2023 í stað 5,5% og taka almennt gildi þann 1. júní nk. Gjaldskrárbreytingarnar taka gildi með þeim fyrirvara að niðurstaða kjarasamninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við stéttarfélög starfsmanna sveitarfélagsins verði í takti við kjarasamninga á almenna vinnumarkaðnum. Gjaldskrá Leikskólans Ásgarðs verður lækkuð í heild sinni og hækkar um 2,5% frá árinu 2023. Gjaldskrá Grunnskóla Húnaþings vestra, dreifnáms og fjarfundastofu breytist með þeim hætti að gjald vegna mötuneytis grunnskólanema verður afnumið frá hausti og frístund lækkar frá haustönn. Verð vegna sumarfrístundar verður lækkað frá áður útgefinni gjaldskrá frá 1. júní. Aðrir liðir í gjaldskránni haldast óbreyttir. Gjaldskrá Tónlistarskóla Húnaþings vestra hækkar um 2,5% frá árinu 2023 frá og með haustönn 2024 vegna þjónustu við börn að 18 ára aldri. Óbreytt gjaldskrá verður vegna hópkennslu sem var nýtt í gjaldskrá fyrir árið 2024, nemenda í forskóla og hljóðfæraleigu en þessi þjónusta hækkaði ekki í upphaflegri gjaldskrá fyrir árið 2024. Gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns og félagsmiðstöðvar hækkar um 2,5% frá árinu 2023 og tekur breytingin í gildi þann 1. júní nk. Breytingin á við um útleigu á félagsmiðstöð, aðrir liðir gjaldskrárinnar eru óbreyttir. Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra breytist þann 1. júní vegna árskorta, en gjald vegna árskorta mun verða sama fjárhæð og hún var árið 2023. Aðrir liðir gjaldskrárinnar verða óbreyttir.
Jafnframt er lagt til að fjárhæð frístundakorta árið 2024 verði hækkuð úr kr. 20.000 í kr. 25.000. Sveitarstjóra og sviðsstjóra er falið að undirbúa gerð viðauka vegna gjaldskrárbreytinganna þar sem þess er þörf.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
10.
|
Ákvörðun um breytingu á fundartíma hefðbundins sveitarstjórnarfundar maímánaðar - 2402067
|
|
|
|
Lögð fram eftirfarandi tillaga: „Sveitarstjórn samþykkir að næsti reglubundni sveitarstjórnarfundur verði haldinn 8. maí nk. þar sem hefðbundinn fundartíma ber upp á uppstigningardag.“ Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
11.
|
Kosningar - 2403032
|
|
Lögð fram beiðni Óskars Más Jónssonar um úrsögn úr skipulags- og umhverfisráði. Sveitarstjórn samþykkir beiðnina og þakkar Óskari fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Lögð fram eftirfarandi tillaga:
„Endurtilnefning í skipulags- og umhverfisráð: Aðalmenn: Ingimar Sigurðsson, formaður Birkir Snær Gunnlaugsson, varaformaður Fríða Marý Halldórsdóttir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir
Varamenn: Guðmundur Brynjar Guðmundsson Valdimar H. Gunnlaugsson Guðný Helga Björnsdóttir Guðjón Þórarinn Loftsson Erla Björg Kristinsdóttir.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
|
|
|
|
12.
|
Skýrsla sveitarstjóra - 2311018
|
|
Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi. Skýrslan var flutt munnlega og til kynningar.
|
|
|
|